Gul viðvörun og enn líkur á eldingum Lovísa Arnardóttir skrifar 7. mars 2026 07:33 Það gæti verið nokkuð blautt í dag og er víðast hvar á landinu gul viðvörun og nokkur vindur. Vísir/Vilhelm Gul viðvörun er í gildi á meirihluta landsins þar til klukkan um hádegi eða seinni part í dag. Lengst eru viðvaranir í gildi á Norðurlandi eystra, Ströndum, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra, eða til klukkan 16. Viðvörun rennur fyrst út í Breiðafirði klukkan 12 en svo klukkan 14 á Suðurlandi og á miðhálendi. Sums staðar eru líkur á eldingum líkt og í gær.
Viðast hvar er i viðvörun talar um suðlæga átt með 18 til 25 metrum á sekúndu með éljagangi og vindhviður þar allt að 35 metrum á sekúndu. Slæmt skyggni og léleg akstursskilyrði. Í veðurspá Veðurstofu Íslands segir einnig að hiti verði á bilinu núll til fimm stig og að draga eigi úr vindi seinnipartinn og þá eigi að kólna meira. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að lægðin sem veldur stormi og hríð liggi 200 kílómetrum vestur af Bjargtöngum og hreyfist hægt og bítandi til norðvesturs. „Í dag verður sunnan og suðvestan 15-25 m/s, hvassast við fjöll á norðan- og vestanverðu landinu með hviðum upp í 35 m/s. Ásamt éljagangi á þessum slóðum er frekar varasamt að vera á ferð. Einkum á fjallvegum verður skafrenningur með lélegu skyggni og versnandi aksturskilyrðum. Gular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir flesta landshluta og gott væri að kanna ástand á vegum áður er lagt af stað,“ segir veðurfræðingur. Næsta lægð á mánudag Á morgun verður samkvæmt hugleiðingum aftur suðlæg átt, átta til 15 metrar á sekúndu. Él eða slydduél í flestum landshlutum og þá einnig líkur á eldingum, einkum sunnan- og vestantil. Bætir sums staðar heldur í vind síðdegis. Hiti breytist lítið. Svo kemur næstu lægð á mánudag með vaxandi suðaustanátt, snjókomu eða slyddu og hlýnandi veðri, en þurrt norðanlands fram á kvöld. Nánar um veður á vef Veðurstofunnar og um færð vega á vef Vegagerðar. Þegar fréttin er skrifuð segir þar að víða sé hálka eða hálkublettir en gott að taka stöðu áður en lagt er af stað í ferðalag. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag: Suðlæg átt 10-18 m/s og él eða snjókoma, en úrkomuminna norðaustanlands fram eftir degi. Frost 0 til 5 stig, en sums staðar frostlaust við sjóinn. Á mánudag: Gengur austan og suðaustan 10-18 með snjókomu eða rigningu, en að mestu þurrt norðanlands fram á kvöld. Hiti um eða rétt yfir frostmarki. Á þriðjudag: Suðvestlæg eða breytileg átt 3-10, skýjað með köflum og sums staðar dálítil él, en víða léttir til norðaustan- og austanlands. Hiti breytist lítið. Vaxandi austanátt með snjókomu eða slyddu sunnanlands um kvöldið. Á miðvikudag: Snýst í norðlæga átt með snjókomu eða slyddu, en úrkomulítið sunnan heiða. Hiti nálægt frostmarki. Á fimmtudag: Ákveðin norðlæg átt með ofankomu á norðanverðu landinu, en lengst af þurrt sunnanlands. Kólnar heldur í veðri. Á föstudag: Útlit fyrir norðlæga átt. Snjókoma fyrir norðan og austan, annars úrkomulítið. Áfram kólnandi veður, frost 2 til 12 stig um kvöldið.
Veður Færð á vegum Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Fleiri fréttir Bjart og fallegt verkalýðsdagsveður Suðvestanátt með skúrum og slydduéljum Skúrir og slydduél en léttskýjað á Norður- og Austurlandi Súld eða rigning og milt veður Allhvöss sunnanátt með rigningu Enn má búast við slyddu eða snjókomu Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Smávegis væta norðantil en bjart sunnantil Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Víða bjartviðri en líkur á þokulofti vestantil Milt veður ríkjandi og hiti að átján stigum Hið rólegasta veður og hiti að fjórtán stigum Veðrið stjórnast af lægð á Grænlandshafi Hitinn nær upp í tíu stig Rólegheitaveður og smá skúrir Víða skúrir en hiti gæti skriðið yfir tólf stig Norðaustan strekkingur og rigning Hæg austlæg átt en skilabakki nálgast Smálægðir á sveimi og hvessir á morgun Hviður þvert á Vesturlandsveg á Kjalarnesi Oftar en ekki viðvörun í gildi í mars Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Minnkandi vindur og stöku él Víða skúrir og hvessir eftir hádegi Allhvass vindur og rigning Önnur lægð nálgast landið Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Vaktin: Austanbylur annan í páskum Sjá meira