Él og slydduél í dag og önnur lægð á morgun Lovísa Arnardóttir skrifar 8. mars 2026 07:27 Það er enn tilefni til þess að klæða sig vel í dag og á morgun. Vísir/Vilhelm Í dag má búast við suðlægri átt og fimm til 13 metrum á sekúndu og él eða slydduél, en lengst af að það verði þurrt norðaustanlands framan af degi. Eftir hádegi gengur í suðaustan 13 til 20 metra á sekúndu og bætir í él um tíma á austanverðu landinu.
Suðaustan 10 til 18 metrar á sekúndu með él síðdegis, en hægari vestantil. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig yfir daginn. Seint í kvöld fer lægðardrag úr landi, dregur úr vindi og kólnar. Léttir til norðaustanlands. Ný lægð á morgun Samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings myndast í kvöld ný lægð sem myndast suður af Hvarfi og kemur til okkar á morgun. Þá má búast við vaxandi austan- og suðaustanátt og snjókomu eða slyddu með köflum, en 10 til 18 metrum á sekúndu með rigningu síðdegis. Lengst af verður þurrt á Norðausturlandi fram á kvöld. Hiti 2 til 6 stig seinnipartinn. Snýst í suðlæga átt 8-13 m/s með skúrum eða slydduéljum suðvestantil undir kvöld. Suðvestan hvassviðri með skúrum eða éljum á þriðjudag. Snýst í austlæga átt eftir hádegi með rigningu og slyddu, en styttir upp norðan- og norðvestantil. Hiti breytist lítið. Þungfært um land allt Víða um land er þungfært og hálka eða hálkublettir. Þá eru einhverjir vegir lokaðir en víðast hvar fært. Í ábendingu veðurfræðings Vegagerðir segir að vetrarfærð sé á landinu mest öllu og geti verið þung. Þrátt fyrir minni vind í dag, sunnudag, en hafi verið síðustu tvo daga heldur áfram að snjóa drjúgt úr éljum og bökkum víða sem getur viðhaldið erfiðum akstursskilyrðum. Vegfarendur er hvattir til að fara varlega og kynna sér akstursskilyrði og umferð fyrir ferðalög. Hægt er að fá nánari upplýsingar um færð vega á vef Vegagerðar og veður á vef Veðurstofunnar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á mánudag: Gengur í austan og suðaustan 10-18 m/s með snjókomu eða rigningu, en að mestu þurrt norðanlands fram eftir degi. Hiti 0 til 6 stig. Snýst í suðvestan 8-15 með skúrum eða éljum sunnan- og vestantil um kvöldið. Á þriðjudag: Suðvestlæg eða breytileg átt 3-10, skýjað með köflum og sums staðar dálítil él, en léttir til á Norðaustur- og Austurlandi. Vaxandi austanátt með snjókomu eða slyddu sunnan- og austantil seinnipartinn. Hiti breytist lítið. Á miðvikudag: Fremur hæg suðvestlæg átt, en norðaustan 13-20 norðvestantil. Víða snjókoma eða slydda, en úrkomuminna sunnan- og austantil. Hiti nálægt frostmarki. Á fimmtudag og föstudag: Ákveðin norðanátt með snjókomu, en lengst af þurrt sunnantil. Hiti um eða undir frostmarki. Á laugardag: Útlit fyrir breytilega átt. Dálítil él austast á landinu framan af degi, en annars yfirleitt bjart. Frost 2 til 10 stig. Vaxandi suðlæg átt með snjókomu eða rigningu og hlýnandi veðri vestantil um kvöldið.
Veður Færð á vegum Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Sjá meira