Fyrirhugaðar aðgerðir gegn offitu harðlega gagnrýndar Sunna Sæmundsdóttir skrifar 8. mars 2026 14:45 Alma Möller hefur lagt fram þingsályktunartillögu með aðgerðum gegn offitu. Vísir/Anton Brink Þingsályktunartillaga heilbrigðisráðherra um aðgerðir gegn offitu er gagnrýnd harðlega í samráðsgátt stjórnvalda. Næringarfræðingur segir aðgerðir þar beinlínis til þess fallnar að auka á fordóma gagnvart fólki með offitu.
Samráðsferli vegna þingsályktunartillögu heilbrigðisráðherra lauk um mánaðamótin og yfir þrjátíu umsagnir bárust. Í umsögn Landspítala segir að um sé að ræða mikilvægt skref í átt að því að ná utan um málefnið og tryggja faglega nálgun. Þá fagnar Hjartavernd tillögunni og lýsir ánægju með áætlanir um auknar álögur á óhollustu og minni skattlagningu á hollari valkosti. Í flestum umsögnum er þó bent á ýmsa vankanta og í nokkrum þeirra sæta áformin harðri gagnrýni. Vilborg Kolbrún Vilmundardóttir, aðjúnkt við Háskóla Íslands og klínískur næringarfræðingur, lýsir yfir miklum áhyggjum og þá sérstaklega af aðgerð er varðar svokallaðar heilbrigðisskimanir meðal ungmenna. „Það er fagnaðarefni að þarna er talað um fordóma og að vinna gegn þeim. En á sama tíma þá er verið að leggja fram aðgerðir sem er eitthvað sem við vitum að ýtir undir þessa sömu fordóma og þá erum við að tala um þegar að bara aðalatriðið er líkamsþyngd, líkamsstærð fólks og það er notað þarna í þessum tillögum,“ sagði Vilborg Kolbrún í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. „Þetta á bæði að nota til skimunar og til að mæla árangur. Það er eitthvað sem við vitum út frá rannsóknum að getur valdið skaða.“ Ungt fólk kallað inn í viðtal ef þörf er á inngripi Lagt er til að hannað verði verklag fyrir sérstaka rafræna heilbrigðisskimun ungmenna frá sextán til nítján ára aldri þar sem skimað verður fyrir áhættuþáttum offitu. Gefi niðurstaða til kynna að þörf sé á inngripi verður viðkomandi kallaður inn í heilbrigðisviðtal í gegnum framhaldsskólaheilsugæslu og fær svo tilvísun í viðeigandi meðferð ef þurfa þykir. „Því er ekki útlistað þarna hvernig þetta myndi vera nákvæmlega framkvæmt, Það samt liggur fyrir að þarna á að fara eftir líkamsþyngdarstuðli og það eitt og sér bara gefur ekki nægar upplýsingar til að skima fyrir hverjum gæti gagnast einhvers konar þjónusta.“ Hún bendir á að hægt sé að skima aðra þætti er varða heilsufar, líkt og andlega líðan, svefnvenjur, hreyfingu og matarræði. „Við bendum á þarna til dæmis eitt slíkt tæki sem að hefur verið notað núna, veit ég, í mæðravernd sem er skimun á mataræði kvenna. Það væri bara mjög auðvelt að þróa líka skimunartæki fyrir mataræði ungmenna,“ sagði Vilborg Kolbrún að endingu.
Heilbrigðismál Heilsa Börn og uppeldi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira