Sport

Ís­lands­meistarar í fyrsta sinn í hundrað ára sögu fé­lagsins

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Taflfélag Vestmannaeyja með Íslandsbikarinn í dag.
Taflfélag Vestmannaeyja með Íslandsbikarinn í dag. Tómas Tandri Jóhannsson

Taflfélag Vestmannaeyja stóð uppi sem Íslandsmeistari Skákfélaga eftir hádramatíska helgi í Rimaskóla.

Taflfélag Vestmannaeyja fagnar hundrað ára afmæli á árinu og þá var viðeigandi að fyrsti Íslandsmeistaratitillinn skilaði sér í hús.

Eyjamenn þurftu þó að hafa vel fyrir honum, en eftir harða keppni og frábæra sigra í 6. og 7. umferð voru þeir með örlögin í eigin höndum þegar lokadagurinn fór fram í dag.

Taflfélag Vestmannaeyja mætti Skákdeild Breiðabliks í lokaviðureigninni og vann mjög tæpan sigur, með 4.5 vinninga gegn 3.5.

Flestir helstu skákmenn landsins tóku þátt á mótinu í Rimaskóla um helgina. Skemmtilegt yfirlitsmyndband af mótinu, sem Tómas Tandri Jóhannsson framleiddi, má sjá hér fyrir neðan. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×