Svífa um í draumalandi eftir dvöl stelpnanna okkar Sindri Sverrisson skrifar 9. mars 2026 09:32 Það gekk ekki sem skyldi hjá íslenska kvennalandsliðinu í Thun en karlaliðið í bænum er núna að nálgast sögulegan áfanga. Samsett/Getty Stór hópur Íslendinga heimsótti Stockhorn Arena í Thun síðasta sumar en hélt þó þaðan heldur svekktur. Í vetur hefur hins vegar taumlaus gleði verið á vellinum og allt útlit fyrir sögulegan viðburð í svissneska fótboltanum.
Það gekk ekki sem skyldi hjá íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta, á EM í Sviss síðasta sumar, en vel fór þó um stelpurnar okkar og aðra Íslendinga sem þar dvöldu í eða við bæinn Thun. Þar búa um 45.000 manns sem hafa nú orðið vitni að hálfgerðu kraftaverki í svissnesku úrvalsdeildinni í fótbolta karla í vetur. Liðið FC Thun gæti nefnilega brátt orðið svissneskur meistari, í fyrsta sinn í 127 ára sögu félagsins. Það sem gerir þetta mögulega afrek enn stærra er sú staðreynd að Thun hefur legið í hálfgerðum dvala síðustu ár, eftir fall niður í næstefstu deild árið 2020. Standings provided by Sofascore Gárungarnir myndu segja að liðið sé búið að vera úti á túni síðan þá, eða þar til að liðið vann næstefstu deild fyrir tæpu ári síðan. Liðið er því núna í efstu deild í fyrsta sinn í mörg ár en er, eftir 2-1 endurkomusigur gegn Young Boys á útivelli í gær, komið með 14 stiga forskot á toppi deildarinnar. An extraordinary story is unfolding in the Swiss Super League, as newly promoted FC Thun are 14 points clear at the top 🤯Thun have never won a major trophy in their 127-year history. But after nine wins on the bounce, it's time to dream for these players and fans 🇨🇭 pic.twitter.com/BVuOByb7lq— Men in Blazers (@MenInBlazers) February 26, 2026 Enn eru níu umferðir eftir, þar af fjórar áður en deildinni verður skipt upp í tvo sex liða hluta eins og á Íslandi, en útlitið er svo sannarlega gott fyrir Thun-menn sem gætu jafnframt snúið aftur í Meistaradeild Evrópu eftir tveggja áratuga bið.
EM 2025 í Sviss Fótbolti Mest lesið Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Fótbolti Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Fótbolti Keflavík - KA | Fyrsti leikur eftir slagsmálin Íslenski boltinn Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Fleiri fréttir FH - KR | Svarthvítur slagur í Krikanum Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Como með mjög strangar miðareglur en hlífa börnunum Keflavík - KA | Fyrsti leikur eftir slagsmálin Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Lukaku lætur ekki sjá sig Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Sjá meira