Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 9. mars 2026 17:29 Margrét Friðriksdóttir, ritstjóri Fréttarinnar, og Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjarfulltrúi Pírata í Kópavogi. Samsett/Lýður Valberg/Vilhelm Netmiðlinum Fréttin.is hefur verið gert skylt að birta andsvör Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur, bæjarfulltrúa í Kópavogi, eftir birtingu aðsendrar greinar upp úr athugasemd Sigurbjargar. Hún sendi inn kvörtun þar sem að rangt hefði verið haft eftir henni.
Þann 6. janúar barst Fjölmiðlanefnd kvörtun frá Sigurbjörgu vegna umfjöllunar um athugasemd sem hún gerði við færslu á Facebook. Fréttin bar fyrirsögnina „Bæjarfulltrúi í Kópavogi segir „kvennalíkama“ alls konar og að sumar konur séu með typpi“. Að mati Sigurbjargar var ýmislegt fullyrt í fréttinni sem væri ekki rétt, rangt væri haft eftir henni og henni eignuð ummæli sem hún hafði aldrei sagt. Í kvörtuninni segist Sigurbjörg hafa haft samband við Margréti Friðriksdóttur, ritstjóra Fréttarinnar, en hún ekki séð ástæðu til að gera breytingar á fréttinni. Væru einungis vangaveltur pistlahöfundar Fjölmiðlanefnd tók kvörtunina fyrir og óskaði eftir upplýsingum og sjónarmiðum frá Fréttinni vegna kvörtunarinnar. Í svari Margrétar sagði að ekki væri hægt að verða við beiðni þar sem um væri að ræða aðsenda grein og Fréttin stundi ekki „ritskoðun á aðsendum greinum“. Hún hafi sjálf hringt í Sigurbjörgu og sú síðarnefnda staðfest það sem kom fram í fréttinni. Í svari sínu benti nefndin á að greinin væri undir birt undir flokknum „Fréttir“ og enginn greinarmunur á henni og öðrum fréttum á miðlinum. Margrét svaraði ábendingu og sagði að hún hefði merkt greinina með efnisorðinu „aðsend grein“. Þá væru einungis settar fram vangaveltur þess sem skrifaði fréttina. Fjölmiðlanefnd bað einnig Sigurbjörgu um að taka fram hvaða staðreyndir hún teldi að rangt hefði verið farið með í umfjöllun fréttarinnar og skjáskot af áðurnefndri athugasemd á Facebook. Hafi ekki brugðist við með fullnægjandi hætti Margrét sagði einnig í svari sínu til Fjölmiðlanefndar að hún hefði rætt við Sigurbjörgu símleiðis, boðið henni í kappræður um málið og einnig í viðtal þar sem hún gæti rætt hvað hún ætti raunverulega við. Sigurbjörg hafnaði báðum boðum en þrátt fyrir það taldi Fjölmiðlanefnd að hún ætti rétt til andsvara á miðli Fréttarinnar. „Réttur til andsvara samkvæmt 36. gr. laga um fjölmiðla lýtur líkt og fyrr greinir að því að leiðrétta staðreyndir þegar aðili telur að lögmætir hagsmunir sínir, einkum æra eða orðspor, hafi beðið tjón af því að rangt hafi verið farið með staðreyndir í fjölmiðli. Að baki ákvæðinu búa þau grunnrök að aðili, sem fjallað er um í fjölmiðli, fái komið að sjónarmiðum sínum og eigi rétt til andsvara telji hann að á honum hafi verið brotið með því að rangt hafi verið farið með staðreyndir í fjölmiðli,“ segir í úrskurði nefndarinnar. Réttur til andsvara er þó ekki til að koma sjónarmiðum að með almennum hætti. Fjölmiðlanefnd taldi Fréttina ekki hafa brugðist við með fullnægjandi hætti við beiðni Sigurbjargar um að koma með andsvör. „Af gögnum málsins má ráða, m.a. af athugasemd þeirri sem var tilefni umfjöllunar Fréttarinnar og því sem kom fram í símatali ritstjóra Fréttarinnar við kvartanda, að kvartandi lét ekki þau orð falla sem henni eru eignuð í umfjöllun Fréttarinnar,“ segir í úrskurðinum. Ákvörðun Fjölmiðlanefndar er því að Fréttin skuli birta sérstakt andsvar Sigurbjargar vegna umfjöllunarinnar á forsíðu vefs þeirra í sömu leturgerð og stærð og fréttir Fréttarinnar. Andsvar Sigurbjargar Erlu í heild „Í umfjöllun Fréttin.is þann 17. nóvember 2025 eru mér eignuð ummæli sem ég hef ekki látið falla. Þar er meðal annars fullyrt að ég segi stúlkum og skólastúlkum að þær eigi að „þegja og sætta sig við karlmenn í kvennaklefa“ og að ég beri ekki virðingu fyrir konu sem varð fyrir kynferðisofbeldi. Ég hef ekki tjáð mig með þessum hætti og þetta er ekki mín afstaða. Í þeirri umræðu sem vísað er til skrifaði ég eingöngu eftirfarandi: „Þú getur farið í sérklefa ef þér þykir óþægilegt að vera í klefa með öðrum fjölbreyttum kvennalíkömum.“ ásamt því sem ég sagði í símtali við ritstjóra að trans konur mættu nota búningsklefa fyrir konur, enda séu þær konur. Fyrrnefndar fullyrðingar í greininni eru því rangar.“
Fjölmiðlar Úrskurðar- og kærunefndir Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Sjá meira