Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Árni Sæberg skrifar 9. mars 2026 16:10 Þorgerður Katrín á blaðamannafundi þar sem hún kynnti þingsályktunartillöguna. Vísir/Lýður Valberg Þingmenn stjórnarandstöðunnar fara hörðum orðum um Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra vegna ákvörðunar hennar um að bera þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB ekki undir utanríkismálanefnd. Þeir segja það brot á þingsköpum en stjórnarliðar vísa því alfarið á bug. Hún biður stjórnandstöðuna um að treysta þjóðinni „í guðanna bænum.“
Til stóð að Þorgerður Katrín mælti fyrir þingsályktunartillögunni að loknum óundirbúnum fyrirspurnatíma á þingfundi dagsins klukkan 15. Áður en fyrirspurnartíminn hófst varð mikil umræða um þingsályktunartillöguna undir liðnum fundarstjórn forseta. Sú umræða endaði á að taka tæpa klukkustund. Beina útsendingu frá hressilegum umræðum á þingfundinum má sjá í spilaranum hér að neðan: Gerðu athugasemdir á nefndarfundi Diljá Mist Einarsdóttir Sjálfstæðisflokki var fyrst í ræðustól Alþingis og upplýsti þingheim um alvarlega athugasemd stjórnarandstöðunnar á fundi utanríkismálanefndar í morgun um að Þorgerður Katrín hafi ekki viðhaft lögbundið samráð við nefndina í tengslum við þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu. Þar vísaði hún til 24. greinar laga um þingsköp Alþingis, sem hljóðar svo: Utanríkismálanefnd skal, auk verkefna sem hún hefur skv. 13. gr., vera ríkisstjórninni til ráðuneytis um meiri háttar utanríkismál enda skal ríkisstjórnin ávallt bera fyrir fram undir hana slík mál jafnt á þingtíma sem í þinghléum, nema brýn nauðsyn banni.] 1) Nefndarmenn eru bundnir þagnarskyldu um þá vitneskju sem þeir fá í nefndinni ef formaður eða ráðherra kveður svo á. „Þetta er nú öll virðingin fyrir þjóð og þingi“ Þá sagði Diljá Mist að stjórnarandstaðan hefði gert alvarlegar athugasemdir við það að ráðherra hefði ekki mætt á fund nefndarinnar í morgun þrátt fyrir eindregnar óskir þar um, sömuleiðis athugasemdir við að ekki hafi verið viðhaft opið samráð við almenning áður en þingsályktunartillagan var lögð fram eins og þó sé skylt samkvæmt gildandi ríkisstjórnarsamþykkt. Diljá Mist kom athugasemdum minni hlutans í utanríkismálanefnd á framfæri.Vísir/Vilhelm „Það er með ólíkindum að lesa um fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslu á erlendum ESB-miðlum á meðan farið er á svig við lög og reglur hér í þinginu um samráð við þingið og um samráð við almenning. Þetta er nú öll virðingin fyrir þjóð og þingi,“ sagði hún. Hlægilegar ásakanir Fleiri þingmenn stjórnarandstöðuna fylgdu Diljá Mist í ræðustól og tóku undir athugasemdir hennar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagði að ekki einungis skuli ríkisstjórnin hafa „falið Evrópubrölt sitt“ fyrir þjóðinni heldur hafi hún leitast við að fela það fyrir Alþingi sömuleiðis. Þar með hafi hann brotið áðurnefnda 24. grein þingskapalaga, sem hann las upp, með leyfi forseta. „Ég ætlast til þess að hæstvirtur forseti, sem segist vera forseti okkar allra hér á Alþingi, bregðist við þessum brotum hæstvirts utanríkisráðherra og ríkisstjórnarinnar,“ sagði hann. Ingvar Þóroddsson í Viðreisn brást fyrstur stjórnarþingmanna við þessum ávirðingum stjórnarandstöðunnar. Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar.Vísir/Vilhelm „Þessar ásakanir um brot á þingskapalögum eru náttúrlega bara hlægilegar. Þessi ákvæði í þingskapalögunum eru augljóslega þarna inni til þess að koma í veg fyrir að ríkisstjórnir taki einhliða ákvarðanir um breytingar á utanríkisstefnu landsins án aðkomu Alþingis eða samráðs við Alþingi. Hér erum við að tala um þingmál sem felur í sér samráð við þjóðina um næstu skref sem eigi að taka sem er á leiðinni inn til þingsins í þinglega meðferð hjá utanríkismálanefnd, þannig að ég vísa þessum fáránlega málflutningi um að hér sé verið að brjóta þingskapalög til föðurhúsanna,“ sagði hann. Þórunn setjist niður með ríkisstjórninni Guðlaugur Þór Þórðarsson Sjálfstæðisflokki sté skömmu síðar í ræðustól og gaf lítið fyrir þessa útskýringu Ingvars. Hann sagði að því miður væri það orðin regla frekar en undantekning að gera þyrfti athugasemdir við framgang ríkisstjórnarinnar gagnvar Alþingi. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.Vísir/Anton Brink „Ég vil vekja athygli ykkar á því að hér kom háttvirtur stjórnarþingmaður og túlkaði þingskapalögin með þeim hætti að allt það sem hefur verið gert frá því að þetta fór inn í þingskapalögin varðandi samráð við utanríkismálanefnd er orðinn dauður bókstafur. Ég held, virðulegi forseti, að ef hér er forysta þingsins sem er umhugað um þingið þá tel ég einsýnt að virðulegur þingforseti setjist nú niður með hæstvirtri ríkisstjórn og útskýri fyrir henni hvernig vinnubrögðin hafa verið hér á þessum vinnustað svo lengi sem elstu menn muna vegna þess að þetta er að fara í fullkomnar ógöngur.“ Mætir fyrir nefndina á fimmtudag Þorgerður Katrín svaraði þingmönnum stjórnarandstöðunnar og sagði þingsályktunartillöguna sem mælt verður fyrir í dag vera margboðaða. Hún hefði líka þegar sagst myndu mæta fyrir utanríkismálanefnd á fimmtudag. „Ég undirstrika að í þessu stóra innanríkismáli, sem þetta mál í rauninni er, er ekki hægt að hafa fallegra og betra og skilvirkara samráð en einmitt við þjóðina okkar, að eiga þetta samtal og hlusta síðan á hennar niðurstöðu og virða niðurstöðuna, að fara með þetta mál fyrir þjóðina og biðja hana að greiða atkvæði: Já, ég vil vita meira eða nei, ég vil ekki vita meira. Svo einfalt er þetta. En það sem ég fæ á tilfinninguna eftir allar þessar ræður og upphrópanir hér enn og aftur er að ég er bara sannfærð um að því oftar sem er farið inn í málið á þessum forsendum, því hræddari er stjórnarandstaðan við þjóðina. Í guðanna bænum, treystið þjóðinni fyrir þessu máli.“
Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira