Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 9. mars 2026 16:12 Þorgerður, Kristrún og Inga eru formenn ríkisstjórnarflokkanna. Vísir/Anton Brink Meirihluti landsmanna er hlynntur þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Tæpur þriðjungur er andvígur.
Til stendur að greiða atkvæði um hvort Ísland eigi að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið þann 29. ágúst. Samkvæmt upplýsingum frá Gallup eru 33 prósent þátttakenda alfarið hlynnt atkvæðagreiðslunni, tólf prósent mjög hlynnt, þrettán prósent frekar hlynnt, tólf prósent hvorki né, sjö prósent frekar andvíg, fimm prósent mjög andvíg og átján prósent alfarið andvíg. Þá eru karlar fremur andvígir atkvæðagreiðslunni en konur, en 39 prósent karla eru andvígir henni en 52 prósent hlynntir. Litið til kvenna eru 22 prósent andvígar og 62 prósent kvenna hlynntar. Það kemur ef til vill lítið á óvart að kjósendur Viðreisnar séu hvað hlynntastir atkvæðagreiðslunni enda hefur slík atkvæðagreiðsla verið eitt þeirra helsta baráttumál. Kjósendur Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins eru andvígastir og rúmur helmingur kjósenda Framsóknarflokksins einnig. Konur, höfuðborgarbúar, háskólamenntaðir og kjósendur Viðreisnar og stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar eru hlynntari atvkæðagreiðslunni en aðrir. Gallup Marktækur munur var á skoðun þeirra sem styðja ríkisstjórnina og þá sem eru andvígir henni. 83 prósent þeirra sem eru hlynntir ríkisstjórninni eru hlynntir atkvæðagreiðslunni. Sjá nánar: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Þátttakendur í könnun Gallup, sem voru rúmlega átta hundruð, voru einnig spurðir hvernig þeir myndu líklegast greiða atkvæði ef þjóðaratkvæðagreiðslan væri haldin í dag. Ekki munaði miklu, 52 prósent sögðust kjósa með áframhaldandi aðildarviðræðum en 48 prósent myndu vilja hætta þeim. Þau sem kysu Viðreisn og Samfylkingu ef kosið yrði til Alþingis í dag telja helst að þau myndu kjósa með framhaldi aðildar viðræðna fremur en þau sem myndu kjósa stjórnarandstöðuflokkana. Þau sem eru hlynnt þjóðaratkvæðagreiðslunni telja frekar að þau myndu kjósa með framhaldi aðildarviðræðna en nánast öll sem eru andvíg þjóðaratkvæðagreiðslunni myndu kjósa með því að hætta þeim. Lítill munur er á kynjunum aðspurð hvort þau kysu af eða á ef gengið yrði til atkvæðagreiðslunnar í dag. Gallup Tengd skjöl Puls_0326_ESB_ThjodaratkvaediagreidslaPDF238KBSækja skjal
Skoðanakannanir Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Evrópusambandið Öryggis- og varnarmál Utanríkismál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira