Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Kristján Már Unnarsson skrifar 9. mars 2026 20:19 Maren Lind Másdóttir, framkvæmdastjóri flugvallarþróunar og innviða hjá Isavia ohf. Bjarni Einarsson Smíði bílastæðahúss við Leifsstöð er ekki forgangsmál hjá Isavia á næstum árum. Yfirmaður flugvallarþróunar og innviða Keflavíkurflugvallar hafnar því að Isavia okri á bílastæðum.
Í kvöldfréttum Sýnar var fjallað um bílastæðamálin við Leifsstöð. Þau eru meðal helstu umkvörtunarefna farþega, einkum gjaldtakan. En er Isavia að okra á bílastæðunum? „Nei, alls ekki. Bílastæði í fyrsta lagi eru náttúrulega innviðir sem að við þurfum að reka. Í öðru lagi þá viljum við bjóða upp á ákveðna þjónustu,“ svarar Maren Lind Másdóttir, framkvæmdastjóri flugvallarþróunar og innviða hjá Isavia ohf. Frá langtímabílastæðum við Leifsstöð.Vilhelm Gunnarsson Við Leifsstöð standa bílar flugfarþega óvarðir gagnvart veðri og vindum. „Það er svolítið erfitt að bera sig saman kannski við önnur bílastæðahús eða bílastæði á landinu. Við verðum svolítið að bera okkur saman við aðra flugvelli. Og þegar, þó svo ég sé nú ekki með tölurnar, en þegar við erum að bera okkur saman við aðra flugvelli, þá erum við ekki að okra á farþegum,“ segir Maren Lind. Bilastæðahús eru sýnd í framtíðaráætlunum um þróun Keflavíkurflugvallar.KEFplus.is Þjónusta Isavia á flugvellinum felst að minnsta kosti ekki í skjólgóðu bílastæðahúsi, en slík hús má sjá á teikningum um framtíðarþróun vallarins. En hvenær er ætlunin að byggja bílastæðahús? „Það er klárlega á langtímaplaninu okkar. En það er ekki núna, - næstu tvö, þrjú til fimm ár er það ekki á planinu að byggja bílastæðahús.“ Bílastæðahús er því ekki forgangsmál Isavia. „Miðað við stöðuna núna, og það sem við höfum metið, þá höfum við talið að minnsta kosti að þetta fari ekki í efsta forgang á listanum hjá okkur,“ segir Maren. Í stað bílastæðahúss hyggst Isavia lengja yfirbyggðar gönguleiðir milli bílastæða og flugstöðvar.skjáskot Það er einna helst að farþegar geti vænst þess að yfirbyggðar gönguleiðir milli bílastæða og flugstöðvar verði lengdar. „Við erum núna að byggja yfirbyggðar gönguleiðir á hina ýmsu staði fyrir farþegana til þess að verja þá fyrir vatni og vindum og við munum klárlega halda því áfram. En bílastæðahúsið, það verður aðeins lengra í það,“ segir framkvæmdastjóri flugvallarþróunar og innviða hjá Isavia í frétt sem sjá má hér:
Keflavíkurflugvöllur Bílastæði Fréttir af flugi Ferðaþjónusta Neytendur Tengdar fréttir Tímabært að koma böndum á gjaldskyldufrumskóginn Stöðum þar sem innheimt eru bílastæðagjöld hefur fjölgað ört undanfarin ár. Samhliða hefur þeim fyrirtækjum fjölgað sem bjóða upp á tæknilegar lausnir og þjónustu við gjaldtökuna og á sama tíma höfum við ítrekað heyrt frá neytendum sem kvarta yfir viðskiptaháttum á gjaldskyldum bílastæðum, skorti á upplýsingum, merkingum og handahófskenndri framkvæmd. 9. janúar 2026 10:02 Ferðin á Keflavíkurflugvöll það erfiðasta við utanlandsferðina Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, segir Isavia einungis telja það hlutverk sitt að hámarka tekjur af samgöngum til og frá Keflavíkurflugvelli. Því sé svo dýrt að leggja þar og ferðast til og frá flugvellinum með almenningssamgöngum. 5. nóvember 2025 11:12 Isavia braut lög á Keflavíkurflugvelli Neytendastofa hefur sektað Isavia um hálfa milljón króna vegna brota á lögum um upplýsingagjöf og viðskiptahættir vegna gjaldskyldra svæða á Keflavíkurflugvelli voru ekki í samræmi við lög. 17. júlí 2025 10:47 Rukkað því fólk hékk í rennunni Isavia mun rukka þá sem staldra við lengur en fimm mínútur í rennunni, á komusvæðinu við Keflavíkurflugvöll. Samskiptastjóri ISAVIA segir að fólk hafi lagt bílnum þar í allt að tuttugu mínútur, sem sé óásættanlegt. 3. mars 2025 11:31 Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira
Tímabært að koma böndum á gjaldskyldufrumskóginn Stöðum þar sem innheimt eru bílastæðagjöld hefur fjölgað ört undanfarin ár. Samhliða hefur þeim fyrirtækjum fjölgað sem bjóða upp á tæknilegar lausnir og þjónustu við gjaldtökuna og á sama tíma höfum við ítrekað heyrt frá neytendum sem kvarta yfir viðskiptaháttum á gjaldskyldum bílastæðum, skorti á upplýsingum, merkingum og handahófskenndri framkvæmd. 9. janúar 2026 10:02
Ferðin á Keflavíkurflugvöll það erfiðasta við utanlandsferðina Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, segir Isavia einungis telja það hlutverk sitt að hámarka tekjur af samgöngum til og frá Keflavíkurflugvelli. Því sé svo dýrt að leggja þar og ferðast til og frá flugvellinum með almenningssamgöngum. 5. nóvember 2025 11:12
Isavia braut lög á Keflavíkurflugvelli Neytendastofa hefur sektað Isavia um hálfa milljón króna vegna brota á lögum um upplýsingagjöf og viðskiptahættir vegna gjaldskyldra svæða á Keflavíkurflugvelli voru ekki í samræmi við lög. 17. júlí 2025 10:47
Rukkað því fólk hékk í rennunni Isavia mun rukka þá sem staldra við lengur en fimm mínútur í rennunni, á komusvæðinu við Keflavíkurflugvöll. Samskiptastjóri ISAVIA segir að fólk hafi lagt bílnum þar í allt að tuttugu mínútur, sem sé óásættanlegt. 3. mars 2025 11:31