Ég hef borgað í mörg ár, samt skulda ég meira Berglind Guðmundsdóttir skrifar 10. mars 2026 07:30 Ég menntaði mig.Ég vinn hörðum höndum.Ég borga af lánunum mínum. Samt skulda ég meira en áður. „Ísland er best í heimi,“ heyrum við gjarnan. Og að mörgu leyti tek ég undir það. Mér þykir vænt um Ísland. En að búa hér getur verið eins og að hlaupa á hlaupabretti sem hraðar stöðugt á sér. Ég útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur árið 2008. Á námsárunum tók ég námslán sem námu um 4 milljónum króna. Ég hef síðan greitt af láninu mánaðarlega. Í dag stendur það í tæpum 8 milljónum. Árið 2022 stóð húsnæðislánið mitt í 53 milljónum. Í dag stendur það í 61 milljónum. Ég hef borgað af lánunum mánaðarlega í mörg ár. Samt skulda ég meira. Þetta er ekki tilfinning.Þetta er raunveruleikinn. Stundum upplifi ég mig eins og ég sé í ofbeldissambandi við íslenska lánakerfið og íslensku krónuna. Ég hef kvartað yfir þessu við fólkið í kringum mig. Svo geri ég það sem svo margir gera. Finn mér aðra aukavinnu. Vinn meira. Reyni að vera hugmyndaríkari, til að ná endum saman. Hlaupa hraðar. En á meðan ég hleyp hækka lánin. Einu sinni ætlaði ég að verða sálfræðingur og hóf nám í sálfræði. Ég áttaði mig fljótt á því að námið átti ekki við mig, en eitt hugtak sat eftir hjá mér. Lært hjálparleysi. Lært hjálparleysi er það er þegar manneskja hefur ítrekað upplifað að tilraunir hennar breyti engu og fer því að trúa að hún hafi enga stjórn á aðstæðum sínum. Þá fer hún hætta að reyna, jafnvel þegar lausn er möguleg. Þegar ég hugsa um íslenska lánakerfið kemur þetta hugtak upp í hugann. Þarf þetta virkilega að vera svona? Við höfum lært að sætta okkur við þetta.Við höfum lært að hlaupa hraðar.Við höfum lært að halda að þetta sé bara svona. En hugsunin „þetta hefur alltaf verið svona“ heldur okkur föngum. Ég er persónulega orðin þreytt á að hlaupa. Og mig langar að vita hvort þetta þurfi í raun að vera svona. Hvort við getum byggt samfélag þar sem fólk sem menntar sig, vinnur og borgar niður skuldir sinar. Ég vil skoða aðra möguleika. Ég vil kíkja í pakkann. Ég segi já við áframhaldi aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Höfundur er hjúkrunarfræðingur og greiðsluþreyttur lántakandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar