Úthlutaði 91 milljón til félagasamtaka Lovísa Arnardóttir skrifar 11. mars 2026 17:05 Alma segir fjölbreytt verkefni hafa fengið styrk. Vísir/Ívar Fannar Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur úthlutað 91 milljón króna í styrki til félagasamtaka sem vinna að mikilvægum verkefnum á sviði heilbrigðismála í þágu tiltekinna hópa. Alls hlutu 40 verkefni styrk og námu styrkfjárhæðir á bilinu 400.000 til 5.000.000 kr.
Hæstu styrkina fengu Rótin, Hjartaheill, Alzheimersamtökin og SÍBS og Parkinsonsamtökin sem fengu öll fimm miljóna króna styrk. Verkefnin sem hlutu styrk eru fjölbreytt samkvæmt tilkynningu en sem dæmi fengu Samtök um POTS og ME-félags Íslands til að afla og miðla fræðslu og þekkingu um sjúkdómsheilkenni á borð við langvinnt Covid, ME-sjúkdóminn og POTS, gerð fræðsluefnis fyrir hjartasjúklinga, fræðslustarf í grunn- og framhaldsskólum um endómetríósu, fíkniráðgjöf og stuðning fyrir aðstandendur, verkefni um skaðaminnkandi þjónustu og geðræktarverkefni, svo fátt eitt sé nefnt. Í tilkynningu frá stjórnarráðinu kemur fram að styrkirnir séu veittir árlega af safnliðum fjárlaga til verkefna á vegum frjálsra félagasamtaka sem miða að því að veita einstaklingum eða hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf. Áskilið sé að verkefnin falli að opinberri stefnu á sviði heilbrigðis- og lýðheilsumála. Mörg verkefnanna lúti að því að útbúa fræðsluefni og standa fyrir fræðslustarfsemi, standa vörð um hagsmuni félagsmanna eða bjóða félagsmönnum upp á ýmiss konar stuðning og ráðgjöf. „Félagasamtök sem starfa að heilbrigðis- og lýðheilsumálum eru mörg og verkefni þeirra afar fjölbreytt. Það sem þau eiga sameiginlegt er að innan vébanda þeirra starfa einstaklingar sem eru reiðubúnir að gefa af tíma sínum og orku til að bæta líf annarra og vinna samfélaginu gagn. Því er mikilvægt að stjórnvöld styðji við starfsemi þeirra, líkt og gert er með styrkjum sem þessum,“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra í tilkynningu stjórnarráðsins.
Heilbrigðismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Rekstur hins opinbera Félagasamtök Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira