Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Kjartan Kjartansson skrifar 12. mars 2026 08:48 Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands gagnvart Hollandi, afhenti yfirlýsinguna fyrir hönd íslenskra stjórnvalda í Alþjóðadómstólnum í Haag. Utanríkisráðuneytið Íslensk stjórnvöld taka nú þátt í máli gegn Ísrael fyrir Aþjóðadómstólnum vegna stríðsreksturs þess á Gasaströndinni. Þetta er í fyrsta skipti sem Ísland tekur þátt í málarekstri af þessu tagi.
Yfirlýsing um þátttöku Íslands í máli sem stjórnvöld í Suður-Afríku hófu gegn Ísrael var sent Alþjóðadómstólnum í gær, að því er kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Þátttaka Íslands er sögð hluti af stefnu sem Alþingi markaði í þingsályktun frá því í nóvember 2023 um afstöðu Íslands vegna átakanna. Þar var þess krafist að alþjóðalögum yrði fylgt og áréttað að öll brot á alþjóðalögum yrðu rannsökuð til hlítar. Suður-Afríka krafðist þess að Ísrael yrði dæmt brotlegt við skyldur sínar samkvæmt hópmorðssáttmála Sameinuðu þjóðanna með framgöngu sinni í stríðinu gegn Hamas á Gasaströndinni. „Það gildir einu hvar átök geisa í heiminum eða hver er að verki, alþjóðasamfélaginu ber skylda til að leiða brot á alþjóðalögum til lykta fyrir sjálfstæðum og óháðum dómstólum. Með þátttöku Íslands í máli Suður-Afríku fyrir Alþjóðadómstólnum beitum við rödd okkar í þágu alþjóðalaga og mannréttinda. Og af því megum við vera stolt,“ er haft eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í tilkynningu ráðuneytis hennar. Í hennar eigin Facebook-færslu segir Þorgerður Katrín að unnið hafi verið að greinargerð Íslands í málinu undanfarna mánuði. Hún hafi upplýst bæði ríkisstjórn og utanríkismálanefnd Alþingis um ákvörðun hennar um að Ísland taki þátt í málinu. „Að skila inn greinargerð í máli sem þessu er stórt skref fyrir litla þjóð. En það er líka áminning um að jafnvel smáríki geta haft áhrif þegar þau velja að beita rödd sinni,“ skrifar utanríkisráðherra. Fréttin hefur verið uppfærð.
Utanríkismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira