Losun virkjana fjórðungi minni með nýrri lofthreinsistöð Kjartan Kjartansson skrifar 13. mars 2026 13:55 Lofthreinsistöðin Steingerður sem var opnuð við Hellisheiðarvirkjun í fyrra. Hún fangar nær allt gas frá virkjunni og er henni þakkað fyrir mikinn samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda frá virkjunum Orku náttúrunnar í fyrra. Orkuveitan Jarðvarmavirkjanir Orku náttúrunnar losuðu tæplega fjórðungi minna af gróðurhúsalofttegundum í fyrra en árið á undan. Árangurinn er fyrst og fremst rakinn til nýrrar föngunarstöðvar á Hellisheiði sem á að draga enn frekar úr losuninni á þessu ári.
Töluvert magn gróðurhúsalofttegunda sem valda hnattrænni hlýnun losnar við vinnslu á jarðvarma. Hellisheiðarvirkjun hefur þannig losað um 40 þúsund tonn af koltvísýringi á ári og virkjunin á Nesjavöllum um tíu þúsund tonn. Steingerður, ný og stærri lofthreinsistöð við Hellisheiðarvirkjun, var tekin í notkun í fyrra. Hún er sögð meginskýring þess að losun virkjana Orku náttúrunnar dróst saman um 24 prósent í fyrra, að því er kemur fram í loftslagsbókhaldi Orkuveitunnar, móðurfélags Orku náttúrunnar. Hreinsistöðin fangar nær allt gas frá virkjuninni og bindur varanlega í berg með tækni Carbfix, dótturfélags Orkuveitunnar, sem var þróuð á Hellisheiði. Losun Hellisheiðarvirkjunar dregst væntanlega enn meira saman á þessu ári þegar hún verður í fullum rekstri. Hún var tekin í notkun um mitt ár í fyrra. Auk koltvísýrings fangar hreinsistöðin brennisteinsvetni úr gufunni frá virkjuninni en það veldur meðal annars loftmengun í mannabyggðum. Tilraunir hafa einnig verið gerðar með niðurdælingu gass frá Nesjavallavirkjun frá árinu 2023. Rafvæða bílaflota og boranir og stefna á grænni innkaup Innkaup á stáli eru sögð stærsti losunarþátturinn í starfsemi Orkuveitunnar á eftir jarðvarmavirkjununum. Langtímastefna fyrirtækisins er sögð sú að kaupa grænni efni en sú framleiðsla er enn takmörkuð í heiminum. Um sextíu prósent bílaflota Orkuveitunnar er nú rafknúinn, þar af allir fólksbílar hennar. Markmið Orkuveitunnar er að allur flotinn verði knúinn endurnýjanlegum orkugjöfum við lok þessa áratugs. Nær öll borverkefni við jarðhitavirkjanir hafi verið knúin rafmagni frá árinu 2017. Í nýju borútboði fyrir næstu ár verður einnig krafa um að rafmagnsborar verði notaðir í verkefnum sem tengjast hitaveitu og köldu vatni. Fréttin hefur verið uppfærð. Upphaflega stóð ranglega að tilraunir með niðurdælingu stæðu enn yfir við Nesjavallavirkjun en þeim hefur verið hætt.
Loftslagsmál Orkumál Jarðhiti Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira