Til leiðtoga í stjórnmálum og stjórnsýslu: Málefni barna og ungmenna Þóra Björg Jónsdóttir skrifar 13. mars 2026 15:00 Vinnueftirlitið stóð fyrir áhugaverðu málþingi í vikunni: „Hvernig er hægt að skapa heilbrigða vinnustaðamenningu?“ Til umfjöllunar var samstarfsverkefni Vinnueftirlitsins, Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga um vinnustaðamenningu í leik- og grunnskólum og þann lærdóm sem má af því draga. Fimm skólar tóku þátt í verkefninu og fulltrúar þeirra lýstu reynslu vinnustaðanna af þátttökunni og árangrinum sem náðist. Sálrænt öryggi og traust voru líklega þau orð sem komu oftast fyrir. Samhljómurinn var mikill um jákvæð áhrif þess að setja skýr og uppbyggileg samskipti í forgang og skýrleika um hlutverk og ábyrgð til að skapa skilyrði fyrir upplifun á sálrænu öryggi sem svo aftur er grunnur að góðum samskiptum og samvinnu. Meðal annars var nefnd upplifun af auknum stuðningi og árangri innan teyma sem lærðu að vinna betur saman, dreifa ábyrgð og veita og þiggja stuðning. Í síðasta erindinu: „Við verðum að horfa á heildarmyndina“ fjallaði Anna Ingadóttir, sérfræðingur í skólamálum hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, um vistkerfi menntunar þar sem hún tók fyrir hversu samtengd við erum í raun og getum ekki horft eingöngu á skólana og starfsfólkið þar heldur einnig hlutverk annarra í menntakerfinu. Það er einmitt þessi nálgun sem þarf að fá aukna athygli og skoðun því það hefur bein áhrif á árangur kerfisins í heild og þar með niðurstöðuna fyrir nemendur. Skýrleiki um hlutverk og ábyrgð og markviss samvinna ríkis og sveitarfélaga skiptir máli því hlutverk þeirra eru samofin heildarárangri kerfisins. Sveitarfélög hafa ýmis tækifæri til að styðja vel við skólastarf, óháð aðkomu ríkisins og hlutverki þess í málefnum grunnskóla. Sveitarfélög bera ekki eingöngu rekstrarlega ábyrgð eins og sums staðar virðist hafa orðið þróunin. Í því samhengi skiptir meðal annars máli að huga vel að tengslum skólastjóra við næsta yfirmann hjá sveitarfélagi og samvinnu þeirra. Undir það fellur skýrleiki um hlutverk og ábyrgð og stuðningur við að halda úti skólastarfi sem tekur mið af fjölbreyttum þörfum barna. Öflugt og markvisst samstarf skólastjóra og næsta yfirmanns hans skilar betri skilningi á þörfum skólanna og þeim stuðningi sem þeir þarfnast, faglegum og fjárhagslegum, og þar með ítarlegri upplýsingagjöf til annarra aðila innan stjórnsýslu sveitarfélags og kjörinna fulltrúa. Þannig þróast betri grundvöllur fyrir ábyrgar ákvarðanir út frá heildarhagsmunum sveitarfélagsins til framtíðar og forgangsröðun við útdeilingu fjármuna. Það er lykilatriði að tryggja öfluga samvinnu á öllum stigum svo hægt sé að vinna markvisst að því að allir nemendur ljúki tíu ára skyldunámi í grunnskóla með traustan grunn til að byggja á í framhaldinu. Með því er átt við tækifæri til áframhaldandi náms en ekki síður alhliða þroska og tækifæra til þátttöku í samfélaginu. Skortur á fjölbreyttari tækifærum til að þroskast og stunda nám innan grunnskóla kemur meðal annars fram í aukinni einstaklingsbundinni stuðningsþörf innan skólanna sem viðbragði við vanlíðan og erfiðleikum í námi þegar vandi hefur safnast upp og er orðinn sýnilegur. Við þær aðstæður eykst þörf á aðkomu félagsþjónustu sveitarfélaga og heilbrigðiskerfins, sem er á hendi ríkisins, annað hvort samhliða eða síðar á lífsleið einstaklinga. Hagnýting þess verkefnis sem var fjallað um á málþingi Vinnueftirlitisins getur verið á breiðum grunni sem ætti að skoða út frá öllum einingunum sem hafa hlutverk og ábyrgð gagnvart menntun og velferð barna. Það þarf ekki að vera bundið við vinnustaði fullorðinna heldur mætti skoða með hliðsjón af heilsu og vinnuumhverfi barna sem eru líka fólk með þarfir. Ef eitthvað er þá eigum við að gera ríkari kröfur til umhverfis barna en fullorðinna út frá þeirri þekkingu sem við höfum nú um alhliða þroska barna. Meðal þess eru þarfir barna fyrir tengsl og öryggi í samböndum við fullorðna, foreldra og aðra, svo þau geti þroskast eðlilega og tekist á við nýjar áskoranir. Það skapar grunn fyrir allt annað, meðal annars félagsþroska og árangur í námi sem tekur mið af ólíkum þörfum. Við getum bætt árangur í opinberri þjónustu við börn og ungmenni til muna með því að sinna forvörnum á ýmsum sviðum auk þess að bregðast strax við þörfum þeirra sem hafa ekki fengið þjónustu við hæfi hingað til. Bæði er betra. Höfundur er lögfræðingur og eigandi STOKKU samvinnustofu Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Mest lesið Verður valdagræðgi Flokks fólksins honum að falli? Júlíus Valsson Skoðun Telur stjórnsýslu Íslands allt of litla Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Þjóðin föst í Groundhog Day krónunnar Baldur Pétursson Skoðun Velferð þarf rými Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Verður Ísland brothætt byggð? Sigurjón Þórðarson Skoðun Halldór 27.06.2026 Halldór Valdatafl eða nauðsynlegt stopp á gölluðu frumvarpi? Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun Að semja við sjálfan sig Sigurjón Njarðarson Skoðun Hvenær ætlum við að taka málefni heimilislausra alvarlega? Erla Björg Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvenær ætlum við að taka málefni heimilislausra alvarlega? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Telur stjórnsýslu Íslands allt of litla Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verður valdagræðgi Flokks fólksins honum að falli? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Tengsl eru innviðir samfélagsins Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Börnin fyrst, en þau bíða enn Steindór Þórarinsson,Jón K. Jacobsen skrifar Skoðun Að semja við sjálfan sig Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Þjóðin föst í Groundhog Day krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Verður Ísland brothætt byggð? Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun „Kannski“ Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Velferð þarf rými Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Ábyrgð í orði og verki Lilja Dögg Alfreðsdóttir,Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Stóru verkefnin leysum við saman Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Valdatafl eða nauðsynlegt stopp á gölluðu frumvarpi? Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: Varúð má ekki verða að forræðishyggju Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Farsæld barna: Ekkert annað en rómantísk saga á blaði Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver á þennan bústað? Já eða nei? Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Brexit og fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla hér á landi Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun How to ruin a university system with one law Colin Fisher skrifar Skoðun Upplýst umræða og framsal ríkisvalds Margrét Einarsdóttir skrifar Skoðun Skólinn er alltaf vandinn Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Geisp Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Dánaraðstoð fyrir deyjandi fólk: Á ótti við framtíðina að ráða úrslitum? Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Það sem kynslóðir byggðu – og okkar ábyrgð að varðveita Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Handan óttans: Hvers konar Ísland viljum við byggja? Bjarndís Helena Mitchell skrifar Skoðun Lifandi hvalir skapa líka verðmæti Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon skrifar Skoðun Hangið frammi á gangi í von um fréttir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Viðreisn gengur í verkin Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvenær ætlum við að taka málefni heimilislausra alvarlega? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Dánaraðstoð fyrir deyjandi fólk: Á ótti við framtíðina að ráða úrslitum? Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon skrifar