Sló í fugl en það dugði ekki til Sindri Sverrisson skrifar 16. mars 2026 08:03 Sepp Straka sló boltanum í fugl á lokaholu The Players. Samsett/Getty/PGATour Austurríkismaðurinn Sepp Straka átti ansi slæma lokaholu á The Players mótinu í golfi í gær en minnstu munaði að afslappaður fugl á svæðinu tryggði honum 20-30 milljónir króna aukalega.
Eftir annað högg Straka á 18. brautinni skoppaði boltinn nefnilega í einn af þremur fuglum sem sátu í makindum við tjörnina og virtust ekki kippa sér upp við að bestu kylfingar heims væru að keppa um sigur á einu stærsta móti ársins. Boltinn hafði stefnt út í tjörnina en fór í bak fuglsins og var nálægt því að fara til baka og inn á grasið, eins og sjá má hér að neðan. The bird nearly saved it! 🐦⬛Sepp Straka's second shot on 18 finds the water after catching a bird on the fly.📺 NBC pic.twitter.com/Q9dnVZuyu1— PGA TOUR (@PGATOUR) March 15, 2026 Það hefði hjálpað Straka en hann endaði á að spila lokaholuna á tveimur höggum yfir pari, og lokahringinn þar með á -1 höggi. Straka endaði því á samtals -8 höggum, jafn tveimur öðrum í 8. sæti og hlaut 731.250 dollara í verðlaunafé, eða um 92 milljónir króna. Kylfingarnir í 5.-7. sæti, þar á meðal Svíinn Ludvig Åberg sem kastaði frá sér forystunni með +4 högga lokahring, fengu 925.000 dollara eða um 116 milljónir króna hver, með því að ljúka mótinu einu höggi á undan Straka. Cameron Young fagnaði sigri á mótinu, eftir að hafa verið í 3. sæti fyrir lokahringinn, en hann lék samtals á -13 höggum og endaði höggi á undan Matt Fitzpatrick sem fékk skolla á lokaholunni.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Bein útsending: Arnar kynnir landsliðshópinn Fótbolti Fleiri fréttir Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira