Innlent

Rúta skíð­logar í Hafnar­firði

Árni Sæberg skrifar
Rútan verður sennilega ekki notuð aftur.
Rútan verður sennilega ekki notuð aftur. Arnar Stefánsson

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins berst nú við eld í rútu sem kviknaði í í Hellnahverfi í Hafnarfirði upp úr klukkan 15. Rútan var á flutningavagni og því mannlaus.

Hlynur Höskuldsson, deildarstjóri á aðgerðasviði slökkviliðsins, segir í samtali við Vísi að ekki sé talið að nokkuð annað en rútan og flutningavagninn séu í hættu. Einn dælubíll sé kominn á vettvang og reikna megi með því að rútan muni brenna til kaldra kola.

Mikinn reyk leggur af rútunni.Arnar Stefánsson
Verið var að flytja rútuna þegar kviknaði í henni.Hlynur S



Fleiri fréttir

Sjá meira


×