Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ Samúel Karl Ólason skrifar 17. mars 2026 09:53 Ali Larijani, forseti þjóðaröryggisráðs Íran, og Gholamreza Soleimani, yfirmaður Basij-sveitanna svokölluðu. Ísraelar segjast hafa fellt þá báða í loftárásum í gærkvöldi. AP Varnarmálaráðherra Ísrael segir að Ali Larijani, forseti þjóðaröryggisráðs Íran, hafi verið felldur í loftárás í nótt. Þá segjast Ísraelar einnig hafa banað yfirmanni Basij-sveitanna svokölluðu en það eru sveitir sjálfboðaliða sem heyra undir íranska byltingarvörðinn. Þessar sveitir hafa verið sakaðar um umfangsmikil ódæði gegn mótmælendum í Íran.
Fjölmiðlar í Ísrael hafa eftir Israel Katz, varnarmálaráðherra, að Larijani hafi verið felldur í loftárás í gærkvöldi. Larijani hefur lengi verið áhrifamikill í klerkastjórninni í Íran en hann var á árum áður herforingi í íranska byltingarverðinum. Í yfirlýsingu frá ísraelska hernum segir að aðrar loftárásir hafi í gær verið gerðar sem beindust gegn Gholamreza Soleimani, sem leitt hefur Basij-sveitirnar undanfarin sex ár. Hann er sagður hafa tekið virkan þátt í að brjóta mótmæli fyrr á þessu ári í Íran á bak aftur. Þúsundir mótmælenda eru sagðir hafa verið skotnir af öryggissveitum. Soleimani hefur verið beittur refsiaðgerðum af Bandaríkjunum, Evrópusambandinu og fleirum vegna aðkomu hans að því að brjóta mótmæli í Íran á bak aftur í gegnum árin. בתקיפה מדויקת בטהרן: צה״ל חיסל את מפקד יחידת הבסיג׳חיל האוויר בהכוונה מודיעינית מדויקת של אמ״ן, תקף אתמול באופן ממוקד בלב טהרן וחיסל את ע׳לאם רצ׳א סלימאני, מפקד יחידת הבסיג׳ לאורך שש השנים האחרונות. כוחות הבסיג׳ מהווים חלק מהכוחות החמושים של משטר הטרור האיראני. במסגרת המחאות… pic.twitter.com/qopLhFkXLF— צבא ההגנה לישראל (@idfonline) March 17, 2026 Í yfirlýsingunni segir að þeir Larijani og Soleimani bætist nú í hóp tuga annarra háttsettra leiðtoga Íran sem hafi verið felldir á undanförnum tveimur vikum og rúmlega það. Haldið verði áfram að elta leiðtoga klerkastjórnarinnar uppi og fella þá. Þá hefur Times of Israel eftir Katz að þeir tveir, og allir hinir sem hafi verið felldir, dvelji nú í „dýpstu kimum helvítis“. Árásirnar sem bönuðu Soleimani voru gerðar á tjaldbúðir sem Basij-sveitirnar höfðu reist í Íran. Ísraelar segja marga af æðstu leiðtogum sveitanna hafa einnig fallið í árásunum. Netanyahu’s office shared a photo it says shows him ordering the killing of senior Iranian officials. pic.twitter.com/jLaFWkGbJX— Clash Report (@clashreport) March 17, 2026 Wall Street Journal sagði frá því í gær að öryggissveitir í Íran væru byrjaðar að taka hart á meintum andstæðingum klerkastjórnarinnar, með því markmiði að reyna að koma í veg fyrir frekari mótmæli og andhóf við ríkisstjórnina. Basij-sveitirnar spila stóra rullu í því en fólk hefur verið handtekið fyrir meint samstarf með erlendum aðilum og þá hefur fólki sem þykir líklegt til að efla til mótmæla verið hótað.
Ísrael Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mótmælaalda í Íran Hernaður Tengdar fréttir Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Árásir Írana á skotmörk í nágrannaríkjunum héldu áfram í nótt og í morgun og sömuleiðis árásir Ísraelsmanna á skotmörk í Líbanon. Drónaárás var gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad í Írak og þá var gerð árás á lúxushótel í borginni sem er vinsælt meðal erlendra diplómata. 17. mars 2026 06:52 Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu og Asíu hafa tekið kröfum Trumps um að þeir sendi herskip til Mið-Austurlanda og aðstoði Bandaríkjamenn við að halda Hermússundi opnu af varkárni og með efasemdum. Bandaríkjamenn sögðu bandamönnum sínum ekki frá ætlunum sínum varðandi Íran. 16. mars 2026 15:49 Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Þriðjudaginn 10. mars birti ísraelskur blaðamaður færslu í vaktarfrétt miðilsins Times of Israel sem átti eftir að draga dilk á eftir sér. Þá hafði írönsk skotflaug lent í borginni Beit Shemesh, skammt frá Jerúsalem. Fljótt kom í ljós að skotflaugin hafði lent á óbyggðu svæði í um fimm hundruð metra fjarlægð frá íbúðarhúsum og sakaði engan. 16. mars 2026 14:33 Mest lesið Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Innlent „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Innlent Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Erlent Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Innlent „Veiddu“ grænmetissala með dróna Erlent Vill breyta lögum um .is Innlent Fleiri fréttir „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ Sjá meira
Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Árásir Írana á skotmörk í nágrannaríkjunum héldu áfram í nótt og í morgun og sömuleiðis árásir Ísraelsmanna á skotmörk í Líbanon. Drónaárás var gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad í Írak og þá var gerð árás á lúxushótel í borginni sem er vinsælt meðal erlendra diplómata. 17. mars 2026 06:52
Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu og Asíu hafa tekið kröfum Trumps um að þeir sendi herskip til Mið-Austurlanda og aðstoði Bandaríkjamenn við að halda Hermússundi opnu af varkárni og með efasemdum. Bandaríkjamenn sögðu bandamönnum sínum ekki frá ætlunum sínum varðandi Íran. 16. mars 2026 15:49
Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Þriðjudaginn 10. mars birti ísraelskur blaðamaður færslu í vaktarfrétt miðilsins Times of Israel sem átti eftir að draga dilk á eftir sér. Þá hafði írönsk skotflaug lent í borginni Beit Shemesh, skammt frá Jerúsalem. Fljótt kom í ljós að skotflaugin hafði lent á óbyggðu svæði í um fimm hundruð metra fjarlægð frá íbúðarhúsum og sakaði engan. 16. mars 2026 14:33