Óþarfa „sannleiksleit“ Valdimar Guðjónsson skrifar 18. mars 2026 12:46 Áhugi Evrópusambandsins á Íslandi sérstaklega er nýtilkominn. Kristrún lýsti því nýlega hvað Von der Leyen ESB stýra var hrifinn af öllu hér í heimsókn nýlega. Hvað við værum úrræða góð og gengi vel. Allt í góðu með það og Kristrún var voðalega stolt af sínu. En ef kafað er dýpra kemur ástæðan auðveldlega í ljós. Hvers vegna þau vilja okkur nú með í klúbbinn. Það er ekki stjórnviska, snilli núverandi ríkisstjórnar eða neitt sérstakt markaskor hjá örþjóð – sem útaf fyrir sig skiptir ESB litlu máli . Það er einfaldlega landfræðilega mikilvæg lega landsins í miðju Atlantshafi á stríðstímum í Evrópu. Annar þjóðarleiðtogi rak augun í hið sama - fyrir um 85 árum síðan. Hann hét Winston Churchill. Þetta er seinni tíma staða, því gegnum árhundruð og tímabil stórstríða á meginlandinu skipti útsjávar eyjan Ísland engu máli í nokkru samhengi. Það breyttist í síðustu heimstyrjöld þegar enn öflugri stríðstól voru notuð. Þarna er nú kominn ástæðan fyrir “góðri” samningsstöðu sem Þorgerður utanríkisráðherra blæs út í sínum lúðrum án þess að útskýra það neitt nánar. En stríð hafa sem betur fer flest tekið enda einhvern tímann. Þá verðum við aftur áfram verulega afskekkt á landakortum. Lífskjör á Íslandi eru góð á öllum mælum. Það er ekki frasi, heldur niðurstaða viðmiða og mælieininga sem þjóðir heims hafa komið sér saman um. Með inngöngu eða öllu heldur undirgöngu skilmála ESB festum við okkur í göllum Evrópusamstarfsins. Þeir eru augljósir gagnvart auðlindum okkar. Okkur hefur vegnað vel efnahagslega síðustu ár. Tískan er að kenna krónunni um flest, en hún hefur tekið flestum gjaldmiðlum fram síðustu sex ár samflellt í stöðugleika. Það er stundum hjákátleg að heyra viðtöl við Íslendinga búsetta erlendis andmæla krónunni. Jafnvel eldri borgara að fá lífeyri sinn héðan. Búa jafnvel við miklu meiri kaupmátt heldur en Spánverjinn í næsta húsi – vegna þess hve krónan hefur verið sterk, þrátt fyrir allt, þökk sé öflugum gjaldeyrisvarasjóð. Verðbólgan hefur verið innanbúðarvandi , að mestu. Þann vanda þarf að leysa, jafnvel þó gengið væri inn í “hillinga sælu” Þorgerðar Katrínar. Samningaviðræður eru ekki val af hlaðborði , heldur undirganga skilmála sem öllum eru ljósir. Ekki óopnaður jólapakki undir tré. Spurningin er slæm og einfalda svarið er augljóslega nei. Og það við spurningu sem engin ríkisstjórnarflokkanna hafði veruleg hátt um fyrir síðustu kosningar. Sundrung og óþarfa deilur eru nægar tengdar umdeildu máli og klofinni þjóð. Loksins þegar orðaskaki og sundrung í fjölskyldum var að linna eftir efnahagsáföll á síðustu öld. Höfum því vit á að hafna þessu óþarfa ESB brölti strax og segja NEI síðla sumars. Höfundur er kúabóndi og fyrrverandi fréttaritari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Skoðun Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun