Alvarlegir annmarkar á brunavörnum á Stuðlum Birgir Olgeirsson skrifar 18. mars 2026 11:14 Stuðlar eru í Fossaleyni í Grafarvogi. Á myndinni sést hvar í húsnæðinu bruninn átti sér stað í október 2024. Vísir/Vilhelm Rannsókn er sögð hafa leitt í ljós alvarlega annmarka á brunavörnum á meðferðarheimilinu Stuðlum. Þetta kemur fram í skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á eldsvoða sem varð á Stuðlum í október árið 2024 þar sem piltur lét lífið.
Eru þessir annmarkar á brunavörnum, virkni þeirra og eftirliti sagðir hafa haft veruleg áhrif á öryggi og mannslíf. Bruninn varpaði ljósi á veikleika í kerfinu Í skýrslunni er eldsvoðinn sagður hafa varpað ljósi á veikleika í því kerfi sem ætlað er að tryggja brunavarnir í mannvirkjum þar sem vistaðir eru viðkvæmir einstaklingar sem ekki eru færir um að koma sér sjálfir út eða á öruggt svæði við eldsvoða. Í þannig mannvirkjum eru gerðar auknar kröfur til brunavarna, virkni þeirra og reglubundins eftirlits. Ítrekaðar kröfur um úrbætur voru ekki uppfylltar Samkvæmt lögum beri eigandi og eftir atvikum forráðamaður mannvirkis ábyrgð á því að brunavarnir séu að virka og að reglubundið eftirlit sé viðhaft. „Á árunum fyrir eldsvoðann voru ítrekað gerðar kröfur um úrbætur á brunavörnum gagnvart Ríkiseignum, sem eiganda mannvirkisins. Kröfur um úrbætur voru bæði gerðar í kjölfar hefðbundins eldvarnareftirlits Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og við framkvæmd öryggis- og lokaúttekta byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar. Þrátt fyrir það voru nauðsynlegar úrbætur ekki gerðar,“ segir í tilkynningu um skýrsluna. Fjórar tillögur að úrbótum Stofnunin gerir fjórar tillögur að úrbótum sem miða að því að efla brunavarnir með skýrari ábyrgð, betra eftirliti og auknu aðgengi að upplýsingum. Í fyrsta lagi að eigendur og forráðamenn mannvirkja beri skýra ábyrgð á eigin brunavörnum, meðal annars með fræðslu og sérstöku eftirliti með mannvirkjum þar sem fólk getur ekki bjargað sér sjálft; í öðru lagi að byggingarfulltrúar tryggi að mannvirki séu ekki tekin í notkun án öryggis- og lokaúttektarvottorðs og að slökkvilið hafi aðgang að nauðsynlegum gögnum; í þriðja lagi að mannvirkjaskrá HMS verði nýtt betur svo eftirlitsaðilar hafi sameiginlegt aðgengi að hönnunargögnum og geti fylgst með að brunavarnir, eftirlit og rýmingaráætlanir séu í samræmi; og í fjórða lagi að eldvarnaeftirlit slökkviliða verði styrkt með aukinni fræðslu, leiðbeiningum og regluverksbreytingum sem taki mið af áhættu og breyttu byggingareftirliti. Skýrsluna í heild má lesa hér.
Málefni Stuðla Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Sjá meira