Handbolti

Leið­toginn Sig­valdi fer til Þýska­lands

Sindri Sverrisson skrifar
Sigvaldi Björn Guðjónsson er búinn að semja við Hannover Burgdorf.
Sigvaldi Björn Guðjónsson er búinn að semja við Hannover Burgdorf. Hannover Burgdorf

Sigvaldi Björn Guðjónsson hefur samið við þýska handknattleiksfélagið Hannover-Burgdorf og mun því spila í bestu landsdeild heims á næstu leiktíð, meðal annars til að styrkja stöðu sína í íslenska landsliðinu.

Sigvaldi hefur síðustu fjögur tímabil spilað með Kolstad í Noregi og verið þar fyrirliði í afar sigursælu liði. Félagið glímir hins vegar við mikil fjárhagsvandræði og hefur verið að missa sínar stærstu stjörnur.

Sigvaldi bætist í þann hóp í sumar þegar hann gengur til liðs við Hannover-Burgdorf, þar sem fyrrverandi landsliðsmaðurinn Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari.

Ljóst er að forráðamenn þýska félagsins sjá Sigvalda fyrir sér sem mikinn leiðtoga sem leysa mun af hólmi fyrirliðann Marius Steinhauser í hægra horninu en hann er á leið til Rhein-Neckar Löwen.

Sýnt gæði sín í mörg ár

„Sigvaldi styrkir okkur sem alþjóðlega reyndur hægri hornamaður sem hefur sýnt gæði sín stöðugt í mörg ár – sérstaklega í Meistaradeildinni,“ segir Sven-Sören Christophersen, yfirmaður íþróttamála hjá Hannover-Burgdorf. 

Bent er á það á vef félagsins að Sigvaldi hafi nú spilað sjö leiktíðir í Meistaradeild Evrópu og meðal annars náð í úrslitaleik keppninnar með Kielce þó hann hafi misst af þeim leik vegna meiðsla. 

Þá hafi Sigvaldi farið á mörg stórmót með Íslandi þó að hann hafi ekki verið valinn í EM-hópinn í janúar en þar spiluðu meiðsli inn í. Sigvaldi er staddur hér á landi enda í hópnum sem mætir Svíum í tveimur vináttulandsleikjum á morgun og laugardag.

„Hann er ekki aðeins sannfærandi með því hve frábærlega hann klárar færin sín, af mikilli skilvirkni, heldur býr hann einnig yfir dýrmætum leiðtogahæfileikum. Ásamt Daniel Weber mun hann mynda öflugt tvíeyki í hægra horninu. Við erum sannfærðir um að með reynslu sinni og gæðum muni hann fljótt taka að sér burðarhlutverk í liðinu okkar,“ sagði Christophersen.

Ætlað að leysa fyrirliðann af hólmi

Þjálfarinn Juan Carlos Pastor er líka hæstánægður:

„Ég er mjög ánægður með að Sigvaldi muni ganga til liðs við okkur næsta tímabil, þar sem hann hentar verkefninu okkar frábærlega. Við vorum að leita að reynslumiklum leikmanni sem gæti komið í staðinn fyrir núverandi fyrirliða okkar og sem hefur svipaða reynslu og hlutverk. Hann er áreiðanlegur markaskorari í sinni stöðu, er fær í vítaköstum og mjög hraður leikmaður.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×