Black Cube sakað um njósnir fyrir kosningar í Slóveníu Kjartan Kjartansson skrifar 19. mars 2026 09:09 Robert Golob, forsætisráðherra Slóveníu, (t.v.) með Emmanuel Macron, forseta Frakklands. Golob hefur varað við afleiðingunum fyrir Evrópusambandið ef andstæðingur hans nær kjöri í kosningum á sunnudag. Vísir/EPA Ísraelska leyniþjónustufyrirtækið Black Cube er sakað um leka upptökum sem var aflað með leynilegu eftirliti og hlerunum til þess að koma höggi á forsætisráðherra Slóveníu rétt fyrir kosningar. Sama fyrirtæki njósnaði um son íslensks þingmanns og kom leynilegum upptökum af honum í umferð.
Upptökur af fyrrverandi ráðherra, þekktum lögfræðingi og fleiri mektarmönnum hafa skekið kosningabaráttuna í Slóveníu. Þær virðast afhjúpa leynimakk um spillingu, ólöglega hagsmunabaráttu og misferli með opinbert fé, að því er kemur fram í frétt evrópska blaðsins Politico. Markmiðið með birtingu upptakanna virðist vera að grafa undan ríkisstjórn Roberts Golob, frjálslynds forsætisráðherra Slóveníu, sem háir harða baráttu við íhaldsflokk Janez Jansa, fyrrverandi forsætisráðherra landsins til margra ára. Kosningarnar fara fram á sunnudag en Golob hefur haldið því fram að sigri Jansa ógni það undirstöðum Evrópusambandsins í heild. Jansa hefur verið líkt við Viktor Orban, skoðanabróður hans, í Ungverjalandi sem hefur verið þrándur í götu Evrópusambandsins lengi. Flokkur Jansa mælist nú með forskot á flokk Golob í skoðanakönnunum. Sagðir hafa hitt flokk Jansa Slóvensk yfirvöld segja að útsendarar Black Cube hafi ferðast fjórum sinnum til landsins á undanförnum mánuðum, þar á meðal Dan Zorella, forstjóri Black Cube, og Giora Eiland, fyrrerandi formaður þjóðaröryggisráðs Ísraels. Báðir menn voru áður í ísraelska hernum. Ásakanir eru um að útsendarar Black Cube hafi hitt fulltrúa flokks Jansa þó að yfirvöld hafi ekki sjálf fullyrt það fullum fetum. Jansa hefur hótað að stefna þeim sem halda slíkum ásökunum á lofti. Janez Jansa, fyrrverandi forsætisráðherra Slóveníu, á ráðstefnu íhaldsmanna í Ungverjalandi.Vísir/EPA „Sú staðreynd að leynilegt eftirlit og símhleranir í þessu máli tengist einkareknu leyniþjónustufyrirtæki frá Ísrael bendir til nokkurs ískyggilegs. Þetta er ekki bara hver önnur uppákoma, þetta vekur alvarlega áhyggjur af heilindum lýðræðislegra kosninga í Slóveníu,“ sagði Golob forsætisráðherra í vikunni. Svipaðar aðferðir og gegn syni Jóns Aðferðirnar sem Black Cube er sakað um að beita í Slóveníu eru að hluta til þær sömu og fyrirtækið notaði til þess að gera leynilegar upptökur af Gunnari Bergmann Jónssyni, syni Jóns Gunnarssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, og birta skömmu fyrir þingkosningarnar árið 2024. Útsendari Black Cube lést vera fjárfestir sem væri áhugasamur um fasteignaviðskipti en tók svo á laun upp samtal sitt við Gunnar þar sem hann lýsti meðal annars ítökum Kristjáns Loftssonar, hvalveiðimanns, og vinfengi hans við Jón sem þá var aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar í matvælaráðuneytinu. Jón myndi gefa út hvalveiðileyfi á ný eftir að ráðherra Vinstri grænna stöðvaði hvalveiðar. Heimildin, sem var fyrst til þess að birta fréttir upp úr upptökunum, sagði að ónefnd alþjóðleg samtök sem væru andsnúin hvalveiðum hefði ráðið Black Cube. Black Cube er þekkt fyrir undirferli af þessu tagi. Fyrirtækið vann meðal annars fyrir Harvey Weinstein, bandaríska kvikmyndaframleiðandann, og njósnaði fyrir hann um konur sem sökuðu hann um kynferðisbrot. Tveir starfsmenn ísraelska fyrirtækisins gerðu sátt við saksóknara í Rúmeníu eftir að þeir voru sakfelldir að sér fjarstöddum fyrir að hafa njósnað um saksóknara þar sem rannsakaði spillingu. Fyrirtækið hefur einnig beint spjótum sínum að andstæðingum Orban í Ungverjalandi og meðal annars lekið leynilegum upptökum í fjölmiðla sem eru hliðhollir ríkisstjórn hans.
Ísrael Slóvenía Upptökur á Reykjavík Edition Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira