ESB- umræðan á Íslandi er orðin óþolandi léleg Gunnar Einarsson skrifar 19. mars 2026 11:03 Það er erfitt að taka íslenska ESB-umræðu alvarlega þegar svo margir sem taka til máls virðast hafa meiri áhuga á að hræða fólk en upplýsa það. Í stað þess að ræða eitt stærsta pólitíska álitaefni þjóðarinnar af ábyrgð, staðreyndum og yfirvegun, er almenningi boðið upp á endalausan hávaða, ódýr slagorð og gamla skotgrafahugsun. Þetta er ekki bara þreytandi. Þetta er óheiðarlegt. Og það er móðgun við fólk sem á rétt á betri umræðu um framtíð landsins. Í hvert skipti sem Evrópusambandið kemur upp fara sömu viðbrögðin af stað. Annars vegar eru þeir sem tala eins og ESB sé einhvers konar töfralausn sem muni laga efnahaginn, bæta stjórnsýsluna og færa Íslandi sjálkrafa betri framtíð. Hins vegar eru þeir sem haga sér eins og það eitt að ræða málið sé fyrsta skrefið í átt að ræða málið sé fyrsta skrefið í átt að fullveldisglötun og þjóðarslysi. Hvorug afstaðan sýnir almenningi virðingu. Þetta er nefnilega of stórt mál til að það sé afgreitt með stælum. Umræðan um ESB snýr ekki um eitthvað jaðarmál sem hægt er að pakka inn í einfaldan áróður. Hún snýst um fullveldi, efnahag, sjávarútveg, landbúnað, vinnumarkað, neytendavernd, regluverk og stöðu Íslands í heimi sem er sífellt óstöðugri. Það eitt ætti að duga til að umræðan væri vönduð, heiðarleg og upplýsandi. En í staðinn hefur hún of oft verið grunn,tilfinningadrifin og full af pólitískum brellum sem eiga meira skylt við leikrit en lýðræðislegt samtal. Kanski er það versta við þessa umræðu ekki einu sinni ágreiningurinn sjálfur. Ágreiningur er eðlilegur. Fólk á að geta verið ósammála um mál af þessari stærðargráðu. Það sem gerir umræðuna svo léglega er lágkúran sem fylgir henni. Ef einhver vill ræða kosti nánara samstarfs eða aðilar af alvöru, þá er viðkomandi fljótt sakaður um að vilja selja fullveldið. Ef einhver bendir á áhættu, kosnað eða óvissu, þá er sami maður stimplaður sem hræddur, lokaður eða fastur í fortíðinni. Þetta er ekki þroskuð pólitísk umræða. Þetta er pólitísk leti. Og þjóðin borgar verðið fyrir þá leti. Þegar umræðan er svona léleg fær almenningur ekki tækifæri til að mynda sér upplýsta skoðun. Fólk fær hávaða í stað skýrleika, stimpla í stað frekju og æsing í stað heiðarlegrar greiningar. Það er ekki bara slæmt fyrir umræðuna um ESB. Það er slæmt fyrir lýðræðið sjálft. Því lýðræði snýst ekki bara um að kjósa. Það snýst líka um að þjóðin fái raunverulegt tækifæri til að skilja hvað hún er að taka afstöðu til. Íslendingar eiga betri umræðu skilið. Þeir eiga skilið stjórnmálafólk sem treystir þeim fyrir flóknum staðreyndum í stað þess að meta þá á hræðslu eða gylliboðum. Þeir eiga skylið umræðu þar sem farið er heiðarlega yfir bæði það sem gæti tapast. Þeir eiga skilið minna leikrit og meiri alvöru. Ef íslensk pólitík ræður ekki við að ræða svona stórt mál af meiri þroska, meiri heiðarleika og meiri virðingu fyrir almenningi, þá er vandinn ekki bara afstaða okkart til Evrópusambandsins. Vandinn er pólitíska menningin sjálf. Höfundur er meðlimur í Flokki fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Skoðun Skoðun Öfgar og ófagleg vinnubrögð Tryggvi Felixson skrifar Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir skrifar Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Sjá meira
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun
Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar
Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun