Hver hefði haldið? Jean-Rémi Chareyre skrifar 19. mars 2026 12:45 Ekkert lát er á verðbólgunni, og af viðbrögðum ráðamanna að dæma virðist sem þeir bjuggust ekki við að hún yrði eins þrjósk og raun ber vitni. Hvernig stendur á því að forsætisráðherra og fjármálaráðherra, sem eru bæði hámenntaðir hagfræðingar og ættu því að vita allt um hvernig hagkerfið virkar, er að mistakast ætlunarverk sitt um að vinna bug á þessu ósvífnu sníkjudýri? Hver hefði haldið? Var hið „alvarlega óveðurský“ virkilega svo ófyrirsjáanlegt? Við tölum gjarnan um hagkerfið eins og það sé drifið áfram af peningum. En peningaseðlar eru í sjálfu sér einskis virði. Það sem við sækjumst eftir eru vara og þjónusta sem peningarnir geta keypt. Sömuleiðis er verðbólga aðeins bókhaldslegt atriði, sem skiptir engu máli svo lengi sem laun þróast í sömu átt og verðbólgan sjálf. Það sem hinn almenni borgari hefur í raun áhyggjur af er lækkun kaupmáttar, sem getur orðið veruleiki þegar verðlag hækkar meira en launaumslagið. En þegar þróun kaupmáttar á Íslandi er borin saman við þróunina annars staðar í Evrópu sést að hún er svipuð: kaupmáttur er að staðna og jafnvel að dragast aðeins saman í sumum tilfellum. Til að geta sett vöru á markað þarf fyrst að framleiða hana einhvers staðar. Þegar hagkerfinu tekst ekki að framleiða nógu mikið af vöru til að fullnægja eftirspurninni harðnar samkeppnin um vöruna. Hver og einn reynir að yfirbjóða næsta mann og verðlag hækkar. Verðbólgan er þannig einkenni frekar en sjúkdómur. Sjúkdómurinn sjálfur er sú staðreynd að við náum ekki að framleiða eins mikið og við hefðum viljað. Daði Már Kristófersson. Vísir/Ívar Fannar En af hverju er hagkerfið ekki að framleiða nógu mikið? Hagkerfið er í grunninum bara stór verksmiðja sem umbreytir hráefni yfir í vöru og þjónustu. Til þess að framleiðslan gangi þarf að tryggja stöðugt flæði af aðföngum, sem eru annars vegar í formi hráefnis og hins vegar í formi orku (án orku til að flytja og umbreyta hráefninu er hráefnið einskis virði). Kaupmáttur getur þannig ekki haldist óbreyttur nema að flæðið af orku og öðrum auðlindum sé tryggt. Þar gegnir hráolían lykilhlutverki, því framleiðslukeðjur eru ofurseldar olíunni. Og ólíkt því sem stjórnmálamenn virðast halda mátti alveg búast við truflunum í olíuframleiðslu eins og þá sem við erum nú að glíma við eftir árásir á Íran og lokun Hormússunds. Við erum orðin svo vön að mæla allt í krónum og aurum að við sjáum ekki lengur hvað skiptir máli og hvað ekki, hvort er orsökin og hvort afleiðingin. Í nýlegu viðtali segir fjármálaráðherrann að „hækkandi olíuverð í heiminum dregur úr öllum umsvifum meira og minna alls staðar“. En það er ekki hátt olíuverð sem leiðir af sér minni umsvif. Lokun Hormússunds þýðir að framboð af olíu í heiminum er að dragast saman efnislega og geta hagkerfisins til að framleiða minnkar í samræmi við það. Hækkandi olíuverð er ekki orsök, heldur afleiðing af því. Fyrir stríð voru framleiddar 108 milljónir tunna á dag, en eftir lokun sundsins hefur framleiðslan skyndilega hrunið um 7-10 milljónir tunna. 10% samdráttur í olíuframboði þýðir einfaldlega 10% færri vörubílar, skip og flugvélar í umferð, með öðrum orðum 10% samdráttur í hagkerfinu. Vandinn er ekki bókhaldslegur, heldur efnislegur. Einhverjir munu segja að vandinn sé ekki skortur á olíu, heldur truflun á aðfangakeðjum af völdum stríðsins. Það er hálfsannleikur. Ef framboð af olíu í heiminum væri nægilegt myndu olíuríki utan Persaflóa einfaldlega auka sína framleiðslu til að vega upp á móti lokun Hormússunds. Eitt af slagorðum Trumps í kosningabaráttunni var „Drill, baby, drill!“. Hvers vegna lætur hann ekki slag standa einmitt núna? Svarið er að Bandaríkin, ásamt flestum öðrum olíuríkjum heims, eru nú þegar á fullum afköstum og geta ekki auðveldlega aukið sína framleiðslu. Þetta vita Íranar og þetta gerir lokun sundsins að einhvers konar „efnahagslegri kjarnorkusprengju“. Í fyrri grein sem ég skrifaði um efnahagshorfur og birtist í september 2024 spurði ég í fyrirsögn: „Er kreppan að banka á dyrnar?“ Þar reyndi ég að vekja athygli á því að hagvöxtur væri á niðurleið alls staðar í Evrópu, meðal annars á Íslandi, og að sú þróun væri nátengd stöðu orkumála í heiminum og mjög líkleg til að halda áfram þrátt fyrir loforð stjórnmálamanna um að „ræsa vélarnar“. Þá varaði ég við því að „stjórnmálamenn sem lofa gulli og grænum hagvexti munu óhjákvæmilega valda vonbrigðum, með tilheyrandi pirringi hjá kjósendum og tortryggni gagnvart hefðbundnum stjórnmálum.“ Í lok árs 2022 skrifaði ég þrjár blaðagreinar um olíukreppur fortíðar og framtíðarinnar og reyndi að vekja athygli á því að slíkar olíukreppur gætu haft gríðarleg áhrif á íslenskan efnahag ef við værum ekki undir þær búin (hér, hér og hér). Ég reyndi að fá greinarnar birtar í ónefndum fjölmiðli án árangurs. Ég ræddi málið við blaðamenn, stjórnmálamenn og hagfræðinga, sem létu sér fátt um finnast. Ég ræddi meira að segja við núverandi fjármálaráðherra, sem sá enga ástæðu til að óttast slíkar kreppur. Skyldi vera skortur á olíu myndum við bara finna upp á aðra orkugjafa og málið leyst. Við sjáum nú að málið er ekki svona einfalt. Ráðherrann kemur nú af fjöllum og þykir að eigin sögn „leiðinlegt að það gangi ekki betur“. Íranar eru nú að endurtaka leik Pútíns í kjölfar stríðsins í Úkraínu, sem fólst í því að vopnavæða orkuauðlindir í átökum sínum við Vesturlönd. Eftir því sem samkeppni um orkuauðlindir harðnar munu líkur á slíkri vopnavæðingu aukast. Eina leiðin til að draga úr hættu á slíku er að horfast í augu við að jarðefnaeldsneyti er takmörkuð auðlind, sem við þurfum að læra að fara eins sparlega með og mögulegt er, eins fljótt og mögulegt er. Hvort við hækkum stýrivexti eða ekki skiptir litlu máli í þessu samhengi. Hingað til hafa stjórnmálamenn sofnað á verðinum. Vonandi verður þessi nýja olíukreppa tilefni til að endurskoða gallaðar hagfræðikenningar og átta sig á því að afkolun hagkerfisins er ekki bara spurning um umhverfismál, heldur beinlínis spurning um líf og dauða hagkerfisins… Höfundur er sjálfstætt starfandi blaðamaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jean-Rémi Chareyre Mest lesið „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen Skoðun Að tala tungum tveim Ingólfur Sverrisson Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir Skoðun Komið með skólabörnin í heimsókn á gamla leikskólann Elína Hallgrímsdóttir Skoðun Huh eða ro? Freyja Rut Emilsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar Skoðun „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Komið með skólabörnin í heimsókn á gamla leikskólann Elína Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Að tala tungum tveim Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hver á íslenska fánann? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Huh eða ro? Freyja Rut Emilsdóttir skrifar Skoðun Vaðlaheiðargöng: greiðsluvilji er allt sem þarf Hilmar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar Skoðun Verum JÁ-kvæð í ágúst Kristján Kristinsson skrifar Skoðun Nágranninn Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir skrifar Skoðun Er ESB að grafa undan eigin hagsmunum? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landhelgisgæslan til taks - í heila öld Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þegar ,,ríkið” yfirgaf byggðina Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Húsnæðispakkinn Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Lýðræðisveislan í ágúst - Upplýsingar, fullveldi og framtíðarsýn fullvalda þjóðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Meira íslenskt grænmeti er velferðarmál Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun „Biðlisti“ Rannveig Haraldsdóttir skrifar Skoðun Meira afl fyrir orkuna Gunnar Guðni Tómasson skrifar Skoðun Reykjavík er að byrja á röngum enda Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Tvær flugur í einu höggi: Einkavætt og réttarríkið vængstíft! Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hanna Katrín Friðriksson og hvalveiðar — Frelsi eða forræðishyggja? Hjörvar Sigurðsson skrifar Sjá meira
Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar
Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar
Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir skrifar
Skoðun Lýðræðisveislan í ágúst - Upplýsingar, fullveldi og framtíðarsýn fullvalda þjóðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hanna Katrín Friðriksson og hvalveiðar — Frelsi eða forræðishyggja? Hjörvar Sigurðsson skrifar
Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir Skoðun