Upp­gjör: Ármann-Grindavík 103-87 | Rúlluðu upp deildarmeisturunum

Kári Mímisson skrifar
Daniel Love skoraði 21 stig fyrir Ármann í kvöld.
Daniel Love skoraði 21 stig fyrir Ármann í kvöld. Vísir/Anton

Nýkrýndir deildarmeistarar Grindavíkur fengu risaskell gegn Ármanni í 20. umferð Bónus-deildar karla í körfubolta. Ármann sem berst fyrir lífi sínu í deildinni lék nánast óaðfinnanlega á meðan Grindvíkingar náðu aldrei að hrista af sér deildarmeistaraþynnkuna. Lokatölur úr Laugardalshöll 103-87 fyrir Ármann.

Heimamenn fóru hrikalega vel af stað í kvöld og eiginlega gott betur en það. Liðið tók strax frumkvæðið í leiknum og virtist staðráðið í því að halda sæti sínu í deildinni. Á sama tíma verður að segjast að Grindvíkingar voru andlega ekki mættir í leikinn og sáu ekki til sólar í fyrri hálfleik. Hægt og rólega jókst forysta Ármanns en munurinn í hálfleik var 29 stig, staðan 64-35 þegar liðin héldu til búningsherbergja.

Í upphafi seinni hálfleiks náðu heimamenn 32 stiga forystu en það var mesti munurinn á liðunum í kvöld. Grindvíkingar vöknuðu aðeins í þriðja leikhluta og tókst að minnka muninn niður í 13 stig fyrir fjórða leikhluta. Spennan var því tiltölulega mikil fyrir lokaleikhlutann en Grindvíkingar náðu í rauninni aldrei að gera sér neitt mat úr þessu áhlaupi sínu. Lokatölur héðan úr Laugardalshöll 103-87 fyrir Ármann sem styrkir stöðu sína í fallbaráttunni í leiðinni.

Atvik leiksins

Það er í raun og veru ekki neitt eitt atvik sem stendur upp úr leiknum í kvöld annað en það að þegar maður mætti þá lyktaði gólfið að þessi leikur myndi fara eins og hann fór. Heimamenn virtust afar einbeittir í upphitun á meðan það var meistaraþynnka yfir Grindvíkingum sem hafa að litlu að keppa.

Stjörnur og skúrkar

Það voru margir frábærir hjá Ármanni í kvöld en liðið fékk framlög nánast alls staðar að. Bragi fór fyrir sínum mönnum en hann gerði 20 stig, gaf fjórar stoðsendingar og reif niður sjö fráköst. Slóvakíski miðherjinn, Marek Dolezaj, var frábær undir körfunni sem og þá átti Daniel Love einnig góðan leik.

Allt lið Grindavíkur fær að vera skúrkurinn í kvöld. Hvað á maður að segja um svona frammistöðu?

Dómaranir

Þeir félagar gerðu þetta vel í kvöld og skiluðu þessu fínt frá sér. Einn og einn hlutur sem hægt er að setja út á en ekkert stórt.

Stemning og umgjörð

Þeir sem hafa tekið að sér að sinna sjálfboðaliðastörfum á leikjum Ármanns í vetur hafa gert það af stakri prýði og alltaf gaman að mæta í Höllina þar sem vel er tekið á móti öllum. Mætingin í stúkuna var góð í kvöld enda mikið undir hjá heimamönnum. Það verður að segjast að það er orðið ansi líklegt að við fáum fleiri leiki í Bónus-deildinni að ári héðan úr Höllinni.

Jóhann Þór Ólafsson er þjálfari Grindvíkinga.Vísir/Anton

„Ég er auðvitað bara sár.

Jóhann Þór Ólafsson þjálfari Grindavíkur segist aldrei hafa upplifað annan eins leik og

í kvöld sem þjálfari. Hann segist vera sár með frammistöðu síns liðs sem átti afleitan dag.

„Ég er auðvitað bara sár. Fyrri hálfleikurinn er eitthvað sem ég hef bara aldrei lent í sem körfuboltaþjálfari. Ég ætla auðvitað að hrósa Ármenningum sem voru góðir í kvöld og hittu fáránlega vel í fyrri hálfleik. Þeir voru í kringum 50 prósent í fyrri hálfleik en við vorum á sama tíma ekki til staðar varnarlega, “ sagði Jóhann.

„Hvernig við komum inn í þetta hér í kvöld og hvernig við nálgumst þetta verkefni er til skammar. Við gerðum okkur alveg grein fyrir því að það yrði erfitt að gíra sig upp í þetta vitandi hvernig síðasti leikur fór. Andleysið og orkuleysið endurspegla hvernig þetta fór, “ sagði Jóhann.

„Ég er mjög sár og svekktur út í mitt lið. Það var fullt af fólki sem kom til þess að horfa á okkur hér í kvöld og ég er í rauninni orðlaus yfir þessu. Ármenningarnir gerðu vel og eru líka góðir. Þeir eru að berjast fyrir lífi sínu svo ég verð að hrósa þeim aftur fyrir sinn leik. Þetta var bara einn af þessum dögum og allt það, en við vorum hræðilegir hér í fyrri hálfleik, “ sagði Jóhann.

Spurður út í það hvort liðið hafi hreinlega ekki getað gírað sig upp vegna þess að liðið hafi nú þegar tryggt sér sigurinn í deildinni segir Jóhann svo ekki vera og að leikir þar sem úrslitin séu ekki þau mikilvægustu komi reglulega.

„Sem þjálfari þá hefur maður alveg komið inn í svona leik þar sem úrslitin þannig séð skipta ekki öllu eða þar sem tap er engin heimsendir. Við áttum að veita þeim allavega einhverja keppni og ég á eftir að sofna seint í kvöld eftir þessa frammistöðu. Hvernig við mættum og hvernig okkar líkamstjáning var í kvöld var alveg hræðilegt, “ sagði Jóhann.

DeAndre Kane lék ekkert með Grindavík í kvöld. Hann var þó á skýrslu og klæddur til þess að koma inn á völlinn en virtist í raun aldrei líklegur til að spila neitt í kvöld.

„Hann fór úr axlarlið á móti Stjörnunni og svo kom eitthvað bakslag í það í gær þannig að við ákváðum að láta hann ekki spila. Við settum hann samt í búning og létum hann hita upp til þess að sjá hvernig þetta væri. Sjúkraþjálfarinn og þeir sem hafa vit á þessu tóku ákvörðunina að hann yrði ekki með í kvöld en hann verður klár eftir viku, “ sagði Jóhann.

Bragi Guðmundsson á flugi.Vísir / Anton Brink

„Ég sagðist ætla að halda þessu liði uppi og mun gera það.“

Bragi Guðmundsson var ánægður með sigur Ármanns gegn deildarmeisturunum í kvöld þegar hann mætti til viðtals.

„Þetta var fyrst og fremst mikilvægur sigur hjá okkur í kvöld. Mér fannst við slaka aðeins of mikið á í seinni hálfleik, sérstaklega í þriðja leikhluta, en við náðum að klára þetta og ég er ánægður með það, “ sagði Bragi.

Bragi er úr mikilli Grindavíkurfjölskyldu en sjálfur er hann uppalinn þar og lék lengi með liðinu líkt og bróðir hans, móðir og faðir. Spurður að því hvort það hafi hjálpað að gíra sig upp í leikinn að andstæðingurinn var Grindavík segir Bragi svo ekki vera.

„Ég spila nú bara alla leiki alveg eins og ég er bara ánægður með að vinna deildarmeistarana og það er gaman að spila gegn þeim. Ég er bara að einbeita mér að því að spila minn leik og leyfa þessu að koma til mín. Ég var svolítið að þvinga þetta á móti Njarðvík þar sem ég átti ömurlegan leik, sennilega minn versta á tímabilinu, “ sagði Bragi.

ÍA í lokaumferðinni, hvernig leggst sá leikur í þig?

„Sá leikur leggst vel í mig. Við munum mæta klárir. Ég sagðist ætla að halda þessu liði uppi og mun gera það, “ sagði Bragi.

Steinar Kaldal þjálfari ÁrmannsVísir/Diego

„Búnir að vera þrír úrslitaleikir og það er einn í viðbót eftir“

Steinar Kaldal þjálfari Ármanns var að vonum sáttur með sigur liðsins gegn nýkrýndum deildarmeisturum Grindavíkur. Ármenningar tóku forystuna strax í upphafi leiks og tókst að halda gestunum í hæfilegri fjarlægð frá sér allan tímann.

„Við þurftum á þessum sigri að halda enda vissum við að Þór og ÍA myndu vera áfram á eftir okkur. Þetta var mjög mikilvægur leikur hjá okkur og jafn mikilvægur og síðasti leikur á móti Þór, þannig að við erum búnir að vinna núna tvo gríðarlega mikilvæga sigra í röð til þess að halda okkur á lífi.“

Steinar segir að vikan hafi verið góð en liðið vann risasigur gegn Þór Þorlákshöfn í síðustu umferð en bæði þessi lið eru að berjast við að halda sér í deildinni.

„Við gáfum okkur fimmtudaginn til þess að njóta sigursins á Þór og svo fórum við bara í vinnuna strax eftir þann dag. Æfingavikan var góð og menn voru einbeittir. Byrjunin í kvöld var sterk og við hittum svakalega vel, sérstaklega framan af leik. Okkur tókst að keyra á þá, taka þetta opna skot og fengum sjálfstraust í leiðinni. Það er í rauninni það sem skilar okkur sigrinum í kvöld.“

Með sigrinum í kvöld er ljóst að örlög Ármanns eru enn í þeirra höndum. Liðið mætir ÍA í síðustu umferðinni en ljóst er að annað liðið mun falla. Steinar er rólegur spurður út í leikinn gegn ÍA og segist ætla að leyfa sínum mönnum að fagna aðeins í kvöld áður en undirbúningur hefst fyrir leikinn mikilvæga gegn ÍA.

„Nú höldum við bara einbeitingunni. Þetta eru búnir að vera þrír úrslitaleikir og það er einn í viðbót eftir. Við erum tilbúnir að leggja okkar alla í þetta í vikunni en leyfum okkur þó að njóta kvöldsins og svo er bara æfing á morgun.“

Bragi Guðmundsson var frábær í kvöld líkt og í síðustu viku gegn Þór. Steinar hrósar Braga en bendir þó á að liðið hafi verið að fá stór framlög frá mörgum í kvöld.

„Bragi er bara hrikalega öflugur leikmaður sem spilar á öðrum hraða heldur en flestir aðrir. Hann er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur og hefur þroskast töluvert í vetur. Í kvöld fengum við 10 stig hjá fimm eða sex leikmönnum og það var það sem skilar sigrinum. Okkur tókst að láta boltann ganga og dreifa stigunum, sem er það sem þarf hjá okkur.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira