Körfubolti

Ræddu um­talaða sigurkörfu KR: „Þetta er rosa­lega heimsku­legt“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Slátturinn örlagaríki á Meistaravöllum.
Slátturinn örlagaríki á Meistaravöllum. sýn sport

Umtöluð sigurkarfa KR gegn Keflavík í Bónus deild karla var til umræðu í Bónus Körfuboltakvöldi í gær. Magnús Þór Gunnarsson skilur ekki hvað leikmanni Keflavíkur, Mirza Bulic, gekk til þegar hann sló í boltann eftir skot Toms Elvis Leimanis.

Staðan var jöfn fyrir lokasókn KR. Þá átti Leimanis skot sem fór í hringinn og skoppaði til hliðar. Bulic sló í boltann í þann mund sem leiktíminn rann út og í kjölfarið var karfa dæmd gild. KR-ingar unnu því leikinn, 107-105.

Mikið hefur verið rætt og ritað um þessa ákvörðun og Keflvíkingar eru afar ósáttir með dóminn. Magnús segir þó að Bulic eigi að vita betur en að tefla á tvær hættur með því að slá í boltann.

„Boltinn átti aldrei möguleika á að fara ofan í. Þetta var galinn dómur út af því að maður vissi ekki betur. Svo er reglugerðin þannig að þetta má ekkert og þá ætla ég að setja spurningarmerki við þennan leikmann sem gerir þetta. Hann er búinn að spila á Spáni í mörg ár og er alls ekki ódýr útlendingur. Að honum hafi dottið það til dugar að slá þennan bolta í burtu. Láttu þetta bara skoppa í burtu. Þetta er rosalega heimskulegt,“ sagði Magnús í Bónus Körfuboltakvöldi í gær.

Klippa: Bónus Körfuboltakvöld - umræða um sigurkörfu KR

Hörður Unnsteinsson, sem stýrði þættinum, sagði að reglurnar væru alveg skýrar, sama hvaða skoðun menn hafi á þeim.

„Þeir vita allir að þetta er ólöglegt. Þetta má ekki. Reglurnar segja að boltinn verði að hafa möguleika á að fara ofan í,“ sagði Hörður og Hermann Hauksson tók svo orðið.

„Þessi bolti var aldrei að fara ofan í. Hann var ekki nálægt því að fara ofan í. Hann var að skoppa frá hringnum. Það er galið að þetta skuli hafa verið dæmd karfa. KR getur unnið leiki án þess að skora,“ sagði Hermann sem leiddist að sjálfsögðu ekki að sjá KR-inga vinna sigur í leiknum.

„Ég horfði á leikinn og vissi ekki hvað ég var að horfa á. Ég kunni ekki regluna en maður sá á látbragði allra Keflvíkinga að þeir vissu alveg að þetta voru mistök sem hann gerði.“

Hörður skaut þá inn í: „Spurningin er, á boltinn eftir að snerta hringinn aftur. Og svarið þarna er já. Boltinn átti eftir að snerta hringinn aftur og þá getur dómarinn held ég, samkvæmt reglunni, ekki annað gert en að dæma þetta sem körfu. Þetta er rosa heimskulegt.“

Í Bónus Körfuboltakvöldi var einnig tekið fyrir sambærilegt atvik frá EM í fyrra þar sem sami dómur var kveðinn upp og í leik KR og Keflavíkur.

Innslagið úr Bónus Körfuboltakvöldi má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir

„Hefðum unnið þá í framlengingunni í staðinn“

Jakob Örn Sigurðarson þjálfari KR var að vonum sáttur með dramatískan sigur liðsins á Keflavík í kvöld. Sigurinn þýðir að liðin skiptast á sætum þegar skammt er eftir af deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×