Sport

Fékk högg frá kú og þarf að taka sér hlé

Sindri Sverrisson skrifar
Jasmina Suter passar sig eflaust betur í framtíðinni á því hvernig hún umgengst búfénað.
Jasmina Suter passar sig eflaust betur í framtíðinni á því hvernig hún umgengst búfénað. Samsett/Getty

Svissneska skíðastjarnan Jasmina Suter keppir ekki meira á þessu keppnistímabili og er ástæðan ansi óvenjuleg. Hún fékk nefnilega höfuðhögg frá kú.

Suter var staðráðin í að stimpla sig inn í úrslitahluta heimsbikarsins í alpagreinum sem fram fer í Noregi næstu daga en náði ekki nægilega mörgum stigum í síðustu mótunum fyrir úrslitin.

Hún keppti á mótunum tveimur í risasvigi í Andorra um síðustu mánaðamót en féll úr keppni í fyrra mótinu og endaði í 46. sæti í því seinna. Hún varð svo í 47. sæti í Val di Fassa í kjölfarið.

Nú hefur Suter komið með sínar skýringar á því að hún komst ekki í hóp þeirra 25 bestu sem fá að keppa í úrslitum heimsbikarsins í risasvigi. Heimsókn hennar á býli foreldra hennar virðist hafa haft þær afleiðingar.

„Smá fréttir af mér. Rétt áður en ég fór til Andorra þá fékk ég högg í höfuðið frá kú,“ skrifaði Suter á Instagram og var fljót að taka fram að ekki væri um grín að ræða.

„Ég reyndi að komast í heimsbikarsúrslitin en því miður gekk það ekki upp. Höfuðið mitt þarf einhvern tíma til að jafna sig svo að ég mun taka mér smáhlé núna,“ skrifaði Suter.

Gekk fyrir aftan kýrnar og fékk spark

Svissneska skíðasambandið hefur nú staðfest meiðsli Suter við svissneska miðla:

„Hún var að hjálpa foreldrum sínum sem eiga fjós með kúm. Hún gekk fyrir aftan kýrnar þegar ein þeirra sparkaði skyndilega í höfuð hennar,“ sagði í svari sambandsins.

Ekki er ljóst hvort tímabilinu er alveg lokið hjá Suter og hvort hún taki þá þátt í svissneska meistaramótinu þar sem keppt verður í bruni 9. apríl og risasvigi tveimur dögum síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×