Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Kjartan Kjartansson skrifar 20. mars 2026 10:12 Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, þegar hún ræddi við blaðamenn eftir fund leiðtogaráðs sambandsins í gær. Vísir/EPA Tillaga að breytingum á viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir (ETS) verður lögð fram á næstu dögum, að sögn forseta framkvæmdastjórnar sambandsins. Breytingunum er ætlað að bregðast við háu raforkuverði í Evrópu. Einn möguleikinn sem er í skoðun er að fjölga endurgjaldslausum losunarheimildum sem fyrirtæki fá í ETS-kerfinu. Kerfið byggist á því að fyrirtæki þurfi að kaupa losunarheimildir fyrir hvert tonn af koltvísýringi sem það losar og stuðlar að loftlagsbreytingum á jörðinni. Ýmis Evrópuríki hafa gagnrýnt kostnað fyrirtækja vegna ETS-kerfisins að undanförnu, sérstaklega áhrif þess á raforkuverð. Ólíkt Íslandi heyra raforkuver í Evrópu víða undir ETS-kerfið þar sem rafmagn er framleitt með bruna á kolum eða gasi. Kaup orkufyrirtækja á losunarheimildum hafa þannig áhrif á raforkuverð til evrópsks almennings. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, sagði eftir leiðtogafund í gær að brugðist yrði við hækkunum á raforkuverði með blöndu af skyndilausnum og kerfislægum breytingum til lengri tíma. Tillaga um þetta yrði lögð fram á næstu dögum. Milljarðar í að hjálpa fyrirtækjum að draga úr losun Endurskoðun á ETS-kerfinu stóð þegar fyrir dyrum síðar á þessu ári. Sum evrópsk iðnfyrirtæki hafa þrýst á sambandið að draga úr kröfum til þeirra um að þau greiði fyrir eigin losun. ESB er einnig með í smíðum allt að þrjátíu milljarða evra, jafnvirði rúmra 4.300 milljarða íslenskra króna, afkolefnisvæðingasjóð sem yrði notaður til þess að styrkja fyrirtæki í að draga úr losun sinni. Hann yrði fjármagnaður með sölu á 400 milljónum losunarheimilda úr ETS-kerfinu, að sögn evrópska blaðsins Politico. Von der Leyen sagði eftir fundinn með evrópskum leiðtogum í gær að hann hefði verið jákvæður fyrir framtíð ETS-kerfisins. Leiðtogarnir hefðu ekki gert kröfur um grundvallarbreytingar á því og margir þeirra lofað hlut þess í að hraða á orkuskiptum í álfunni. Tilgangur ETS-viðskiptakerfisins með losunarheimildir er að láta iðnfyrirtæki, flugfélög og skipafélög greiða fyrir losun gróðurhúsalofttegunda sem þau valda og skapa hvata til þess að þau dragi úr losuninni. Losun gróðurhúsalofttegunda er orsök loftslagsbreytinga og hnattrænnar hlýnunar sem ógnar stöðugleika samfélaga manna og vistkerfa jarðar. ETS-kerfið er hannað til þess að gera það smám saman dýrara fyrir fyrirtæki að losa gróðurhúsalofttegundir. Fyrirtæki sem heyra undir kerfið fá ókeypis heimildir fyrir hluta losunar sinnar en þeim hefur verið fækkað í áföngum. Frá því að ETS-kerfið var tekið upp árið 2005 hefur losun frá iðnaði sem fellur undir það dregist saman um helming. Önnur losun innan Evrópu hefur dregist saman um fimmtung á sama tíma. Evrópusambandið Loftslagsmál Jarðefnaeldsneyti Orkumál ETS-viðskiptakerfið með losunarheimildir Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira
Einn möguleikinn sem er í skoðun er að fjölga endurgjaldslausum losunarheimildum sem fyrirtæki fá í ETS-kerfinu. Kerfið byggist á því að fyrirtæki þurfi að kaupa losunarheimildir fyrir hvert tonn af koltvísýringi sem það losar og stuðlar að loftlagsbreytingum á jörðinni. Ýmis Evrópuríki hafa gagnrýnt kostnað fyrirtækja vegna ETS-kerfisins að undanförnu, sérstaklega áhrif þess á raforkuverð. Ólíkt Íslandi heyra raforkuver í Evrópu víða undir ETS-kerfið þar sem rafmagn er framleitt með bruna á kolum eða gasi. Kaup orkufyrirtækja á losunarheimildum hafa þannig áhrif á raforkuverð til evrópsks almennings. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, sagði eftir leiðtogafund í gær að brugðist yrði við hækkunum á raforkuverði með blöndu af skyndilausnum og kerfislægum breytingum til lengri tíma. Tillaga um þetta yrði lögð fram á næstu dögum. Milljarðar í að hjálpa fyrirtækjum að draga úr losun Endurskoðun á ETS-kerfinu stóð þegar fyrir dyrum síðar á þessu ári. Sum evrópsk iðnfyrirtæki hafa þrýst á sambandið að draga úr kröfum til þeirra um að þau greiði fyrir eigin losun. ESB er einnig með í smíðum allt að þrjátíu milljarða evra, jafnvirði rúmra 4.300 milljarða íslenskra króna, afkolefnisvæðingasjóð sem yrði notaður til þess að styrkja fyrirtæki í að draga úr losun sinni. Hann yrði fjármagnaður með sölu á 400 milljónum losunarheimilda úr ETS-kerfinu, að sögn evrópska blaðsins Politico. Von der Leyen sagði eftir fundinn með evrópskum leiðtogum í gær að hann hefði verið jákvæður fyrir framtíð ETS-kerfisins. Leiðtogarnir hefðu ekki gert kröfur um grundvallarbreytingar á því og margir þeirra lofað hlut þess í að hraða á orkuskiptum í álfunni. Tilgangur ETS-viðskiptakerfisins með losunarheimildir er að láta iðnfyrirtæki, flugfélög og skipafélög greiða fyrir losun gróðurhúsalofttegunda sem þau valda og skapa hvata til þess að þau dragi úr losuninni. Losun gróðurhúsalofttegunda er orsök loftslagsbreytinga og hnattrænnar hlýnunar sem ógnar stöðugleika samfélaga manna og vistkerfa jarðar. ETS-kerfið er hannað til þess að gera það smám saman dýrara fyrir fyrirtæki að losa gróðurhúsalofttegundir. Fyrirtæki sem heyra undir kerfið fá ókeypis heimildir fyrir hluta losunar sinnar en þeim hefur verið fækkað í áföngum. Frá því að ETS-kerfið var tekið upp árið 2005 hefur losun frá iðnaði sem fellur undir það dregist saman um helming. Önnur losun innan Evrópu hefur dregist saman um fimmtung á sama tíma.
Tilgangur ETS-viðskiptakerfisins með losunarheimildir er að láta iðnfyrirtæki, flugfélög og skipafélög greiða fyrir losun gróðurhúsalofttegunda sem þau valda og skapa hvata til þess að þau dragi úr losuninni. Losun gróðurhúsalofttegunda er orsök loftslagsbreytinga og hnattrænnar hlýnunar sem ógnar stöðugleika samfélaga manna og vistkerfa jarðar. ETS-kerfið er hannað til þess að gera það smám saman dýrara fyrir fyrirtæki að losa gróðurhúsalofttegundir. Fyrirtæki sem heyra undir kerfið fá ókeypis heimildir fyrir hluta losunar sinnar en þeim hefur verið fækkað í áföngum. Frá því að ETS-kerfið var tekið upp árið 2005 hefur losun frá iðnaði sem fellur undir það dregist saman um helming. Önnur losun innan Evrópu hefur dregist saman um fimmtung á sama tíma.
Evrópusambandið Loftslagsmál Jarðefnaeldsneyti Orkumál ETS-viðskiptakerfið með losunarheimildir Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira