Albert og fé­lagar trufluðu topp­lið Inter

Sindri Sverrisson skrifar
Albert Guðmundsson með boltann í leiknum við Inter í kvöld.
Albert Guðmundsson með boltann í leiknum við Inter í kvöld. Getty/Gabriele Maltinti

Titilbaráttunni í ítalska fótboltanum er kannski ekki lokið eftir allt saman. Albert Guðmundsson og félagar í Fiorentina hleyptu meiri spennu í hana með 1-1 jafntefli við topplið Inter í kvöld og náðu um leið í mikilvægt stig.

Inter hefur þar með aðeins fengið tvö stig úr síðustu þremur leikjum og er nú með sex stiga forskot á AC Milan og sjö stiga forskot á Napoli, þegar enn eru átta umferðir eftir. Næstu leikir liðsins, sem reyndar eru ekki fyrr en eftir landsleikjahlé, eru svo við Roma og Como sem eru í 6. og 4. sæti deildarinnar.

Albert var í byrjunarliði Fiorentina og spilaði fram í uppbótartíma, í þessum síðasta leik áður en við tekur sprautumeðferð vegna meiðsla í ökkla. Hann hefur verið að glíma við þau meiðsli eins og Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari sagði frá þegar hann útskýrði af hverju Albert yrði ekki með í komandi landsleikjum.

Inter fékk draumabyrjun í kvöld þegar Francesco Pio Esposito skoraði á fyrstu mínútu, eftir sendingu frá Nicolo Barella, en það var Cher Ndour sem jafnaði metin þegar korter var til leiksloka.

Með þessu stigi sínu í kvöld er Fiorentina tveimur stigum frá fallsæti, í 16. sæti af 20 liðum, og því áfram í mikilli fallhættu eins og alla þessa leiktíð.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira