Guðrún Brá náði þriðja sætinu í Suður-Afríku Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. mars 2026 17:03 Guðrún Brá Björgvinsdóttir var að spila mjög vel á mótinu í Suður-Afríku. Getty/Seb Daly Guðrún Brá Björgvinsdóttir endaði jöfn í þriðja sæti á Platinum Ladies Open-mótinu í Suður-Afríku sem lauk í dag. Guðrún lék frábært golf í mótinu og spilaði hringina þrjá á fjórtán höggum undir pari.
Guðrún lék fyrsta hringinn á 69 höggum, þremur undir pari vallarins. Hún fékk þar þrjá fugla og tapaði ekki höggi. Annan hringinn lék Guðrún á 66 höggum, sex undir pari. Það var frábær hringur, en einungis tveir kylfingar léku á lægra skori en Guðrún þann daginn. Hún fékk sjö fugla og einn skolla á þessum magnaða hring og kom sér upp í sjötta sæti mótsins fyrir lokahringinn. Íslandsmeistarinn hélt góðu gengi sínu áfram í dag og kom í hús á 68 höggum, fjórum undir pari vallarins. Eftir fimm fugla á fyrstu þrettán holunum var Guðrún í mjög góðri stöðu. Sjaldséðir skollar birtust á fjórtándu og sextándu holunum, en hún fylgdi þeim vel eftir með frábærum fuglum á sautjándu og átjándu holunum. Þetta var fjórða og síðasta mót Guðrúnar á Sunshine-mótaröðinni í ár, en hún lék mjög gott golf í Suður-Afríku. Hún stefnir að því að nýta sér þennan góða undirbúning en LET-mótaröðin, sem hún leikur á í sumar, heldur til Suður-Afríku í apríl. Tveir aðrir íslenskir keppendur Hulda Clara Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir voru einnig á meðal keppenda mótsins. Hulda Clara endaði mótið jöfn í 33. sæti á fimm höggum undir pari. Þegar leik var frestað á öðrum keppnisdegi var Hulda nokkrum höggum utan við niðurskurðarlínuna, en komst í gegnum niðurskurð eftir frábæra spilamennsku í morgun þegar leik var haldið áfram. Hún lék þær níu holur sem hún átti eftir á fimm höggum undir pari og tryggði sig áfram með fugli á lokaholunni. Hulda lék lokahringinn einnig vel, hún kom í hús á 70 höggum, fékk tvo fugla og var skollalaus. Andrea náði ekki í gegnum niðurskurð. Hún lék hringi sína á 72-71 höggi og endaði á einu höggi undir pari í heildina. Andrea og Hulda verða áfram í Suður-Afríku og leika í ABSA Ladies Invitational-mótinu í næstu viku. View this post on Instagram A post shared by Golfsamband Íslands (@gsigolf)
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira