Sport

Aníta var síðust í sínum riðli

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aníta Hinriksdóttir keppti aftur á stórmóti eftir langa fjarveru.
Aníta Hinriksdóttir keppti aftur á stórmóti eftir langa fjarveru. Getty/Michael Steele

Aníta Hinriksdóttir komst ekki áfram úr undanrásum í 1500 metra hlaupi kvenna á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum innanhúss.

Þrjár efstu í riðlinum komust í úrslit en Aníta var aldrei með í þeirri keppni. Aníta var með lakasta tímann af hlaupurum í hennar riðli og hún var líka öftust allt hlaupið.

Svo fór að Aníta endaði í áttunda og síðasta sæti í sínum riðli.

Aníta kom í mark á 4:23,17 mínútum, sem er auðvitað langt frá hennar besta. Íslandsmet Anítu er hlaup upp á 4:09,54 mínútur árið 2018. Það var samt ánægjulegt að sjá hana koma til baka á stórmót og vonandi verður þetta upphafið að einhverju meira í framtíðinni.

Frakkinn Agathe Guillemot vann riðilinn á 4:16,25 mínútum og þær Nikki Hiltz frá Bandaríkjunum (4:16,32 mínútur) og Ítalinn Ludovica Cavalli (4:16,45 mínútur) tryggðu sér sæti í úrslitahlaupinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×