Hyggst læra af mistökum Stjörnunnar og sér tækifæri gegn KR Valur Páll Eiríksson skrifar 21. mars 2026 11:00 Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, þekkir vel til KR-liðsins og Óskars Hrafns. Hann er nokkuð bjartsýnn fyrir úrslitaleik dagsins. Vísir / Anton Brink Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, er nokkuð bjartsýnn fyrir úrslitaleik dagsins við KR í Lengjubikar karla í fótbolta. Hann segir hungur í bikar í Árbæ en gerir sér grein fyrir því að verkefnið er ekki einfalt. „
Þetta verður hörkuleikur. KR er náttúrulega með mjög gott lið og góðan þjálfara. En við höfum staðið okkur vel í Lengjubikarnum hingað til. Það hefur verið stígandi í okkar leik og við erum spenntir því að takast á við KR-ingana,“ segir Heimir í samtali við Sýn. Fylkir vann Þór 2-0 á Akureyri á þriðjudaginn var til að tryggja sæti sitt í úrslitunum við KR-ingana og mæta ferskir til leiks. „Við spiluðum vel fyrir norðan gegn sterku liði Þórs á þriðjudaginn og við höfum fengið góðan tíma til að jafna okkur á því og verðum klárir,“ segir Heimir. Stjörnunni slátrað KR vann Stjörnuna í hinum úrslitaleiknum í Garðabæ fyrir sléttri viku, 4-0. Sá leikur hefði hæglega getað endað 10-0 þar sem Vesturbæingar voru með öll völd. Heimir hefur eðlilega greint þann leik fyrir verkefni dagsins og er þá spurður hverju við megi búast. Voru KR-ingarnar svona svakalega góðir eða Stjarnan svona slök þar? „Ég fór yfir þann leik. KR-ingarnir voru góðir og Stjörnumenn hittu ekki á sinn besta dag. Óskar spilar náttúrulega áhættusækinn fótbolta svo það eru ýmsir möguleikar fyrir okkur sóknarlega. Fyrst og fremst fyrir okkur snýst þetta um að við verðum sterkir varnarlega,“ segir Heimir og bætir við: „KR er með mörg vopn í sínu vopnabúri þannig að við þurfum að einblína svolítið á sterkan varnarleik og reyna að meiða þá sóknarlega.“ Í leik síðustu helgar komust Stjörnumenn vart yfir miðju allar 90 mínútur leiksins. Þeir lentu á vegg í sífellu er þeir reyndu að spila sig í gegnum þétta miðju KR sem pressaði látlaust. Heimir vill væntanlega draga lærdóm af því. Á að forðast uppspil gegnum miðjuna? „KR-ingarnir eru mjög góðir að setja pressu á lið þegar þau spila boltanum inn á miðjuna og góðir í pressunni yfirhöfuð. Við þurfum að vera fljótir að koma boltanum af miðjunni út í vængina og ef þeir eru hátt með línuna þurfum við að vera klókir að setja boltann inn fyrir vörnina. Það þýðir lítið fyrir okkur að reyna að spila gegnum miðjuna hjá KR,“ „Þegar þeir tapa boltanum eru þeir mjög góðir að vinna hann aftur. Þá þurfum við að vera klókir, þegar við vinnum boltann að missa hann ekki slæmum stöðum þar sem er stutt í markið okkar,“ segir Heimir. Aðspurður um hvort hann sé bjartsýnn að hann sé einum bikar ríkari eftir daginn segir Heimir: „Ég er alltaf bjartsýnn en við gerum okkur grein fyrir því að við þurfum að spila mjög góðan leik. En á móti kemur að Fylkismenn eru hungraðir í að vinna eitthvað og það er möguleiki á því á eftir. Við þurfum að sýna tennurnar og mæta klárir klukkan tvö.“ Líkt og Heimir nefnir hefst leikur Fylkis og KR klukkan 14:00. Hann verður sýndur beint á Sýn Sport Ísland og lýst beint hér á Vísi. Seinni hálfleik leiksins verður þá fylgt eftir ásamt fjölda leikja víða um Evrópu í Doc Zone á Sýn Sport, sem hefst klukkan 14:40.
Fylkir KR Lengjubikar karla Lengjudeild karla Besta deild karla Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Golf „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Íslenski boltinn Hættir hjá Nike og tekur óvænt skref Fótbolti Steindi gleymdi klukkunni og teikar aðra keppendur Sport Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Fótbolti JJ Gabriel mættur til Barcelona Enski boltinn Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands Enski boltinn Stór dagur fyrir Ottesen fjölskylduna Íslenski boltinn Flestir Íslendingar halda með Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Leikirnir við HK fín æfing fyrir stóru stundina Menn eigi ekki að bugast yfir pressu og ávísun Kraftaverkamaðurinn á Húsavík hættur Stór dagur fyrir Ottesen fjölskylduna „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Uppgjörið:Fram - Víkingur 2-2 | Tvö rauð á teymi Víkinga í dramatísku jafntefli „Töpuðum á réttan hátt” „Fannst á tímabili eins og við gætum spilað í 200 mínútur án þess að skora” „Meira sem að þeir þurfa að hafa áhyggjur af hjá okkur“ Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 4-3 | Bikarþynnka í Vestmannaeyjum Uppgjörið: FH - Stjarnan 1-0 | Halda titilbaráttunni jafnri Myndavélar settar upp eftir skemmdarverkin og allt klárt fyrir risaleik „Keyra á ljósabekkina“ fyrir úrslitaleikinn Skotin flugu milli Bolla og Hjamma FH-stelpur meistarar en KSÍ kom ekki með bikar Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 4-1| Breiðablik kláraði þetta í fyrri hálfleik „Hversu mikil pressa var á honum?“ Sjáum til hvort þetta verði algjör þvæla Seldur frá Keflavík til Sýrlands „Hinna klúbbanna á Íslandi að elta þá“ Markvörður KR fór ítrekað fram: „Alveg stjörnubilað að horfa á þetta“ Sjáðu fyrsta mark Gabríels og flugskalla í rangt mark Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Haukar og Selfoss leika til úrslita Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ „Blikarnir geta sleppt sér lausum“ Sjáðu mörkin: Bomba í slá og inn beint af æfingasvæðinu „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Sjá meira