Saka stjórnarþingmenn um að vanvirða bændur Jakob Bjarnar skrifar 23. mars 2026 16:00 Þórunn Sveinbjarnardóttir boðaði atkvæðagreiðslu um heimild til að þingfundur stæði lengur, nokkuð sem er hefðbundið en það fór ekki eins og hún ætlaði. vísir/anton brink Nokkurt uppnám varð í sölum Alþingis við atkvæðagreiðslu sem Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti þingsins lét fara fram um heimild til að þingfundir stæðu lengur en þingsköp kveða á um. Þingmenn stjórnarandstöðunnar töldu þetta vera til marks um lítilsvirðingu við bændur.
Atkvæðagreiðsla um heimild til þess að þingfundir stæðu lengur en þingsköp kveða á um er yfirleitt nokkuð sem ekki er gerð rekistefna um en nú varð breyting þar á. Jón Gunnarsson, Sjálfstæðisflokki, kvaddi sér hljóðs og vildi gera grein fyrir atkvæði sínu! Sjálfstæðismenn þurfa meira en korter til að rabba við bændur Jón tjáði þingheimi að alla jafna hefðu þingmenn stjórnarandstöðunnar skilning á því og tækju þátt þegar farið væri fram á lengri þingfundi. „En í dag var sett Búnaðarþing og þá taka þingmenn á móti bændum úr sínum röðum í veislu í sínum höfuðstöðvum.“ Jón Gunnarsson segði að Sjálfstæðismenn þyrftu tíma til að ræða við bændur, það væri ekki nokkuð sem þeir afgreiddu á korteri.vísir/vilhelm Jón sagði þetta afar dapurt, að á sama tíma sem boðað væri til þingfundar þá ætluðu Sjálfstæðismenn að taka á móti bændum í Valhöll um kvöldmatarleytið. Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður Samfylkingar sagðist styðja tillögu forseta en það væri gott að hafa heimildina. Á fundi þingflokksformanna hafi þetta verið rætt og hann vonaðist til að þingfundum myndi ljúka á tilsettum tíma. Gegnumgangandi vanvirðing gagnvart þinghefðum Guðlaugur Þór Þórðarson, Sjálfstæðisflokki, fór því næst í pontu og sagði um áratugalanga, gamla hefð væri að ræða, að hitta bændur á Búnaðarþingi, og þarna væri verið að brjóta þá hefð. Væntanlega teldi ráðherrann sem um málaflokkinn heldur, en hann var þar að tala um Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra, sig ekki hafa neitt með það að gera að hitta bændur. Guðlaugur Þór sagði að um væri að ræða aldargamla hefð sem hefði verið við lýði allt frá árinu 1899.vísir/anton brink Og Samfylkingin skóflaði þeim væntanlega bara út eftir korters fund en þannig væri því ekki háttað með Sjálfstæðismenn sem gæfu sér góðan tíma í að ræða við bændur. „Við klárum það ekkert á korteri.“ Sigmar Guðmundsson þingflokksformaður Viðreisnar steig næstur í ræðupúlt og sagði fund þingflokksmanna ágætan og hann skildi ekki í því hvers vegna væri verið að búa til slag um þetta. Viðreisn tæki líka á móti bændum. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins sagði að um væri að ræða gegnumgangandi vanvirðingu gagnvart þinghefðum. Samráð við bændur byggðist á áratugalangri hefð. „Ég á þetta, ég má þetta-ríkisstjórnin“ Hanna Katrín atvinnuvegaráðherra steig næst í ræðustól og sagði þetta óheppilega tilviljun að Búnaðarþing væri á dagskrá akkúrat þegar hún mælti fyrir frumvarpi um lagareldi, en þar gæti minnihlutinn sjálfum sér um kennt. Málið hefði verið tilbúið en minnihlutinn vildi fresta því svo honum gæfist tími til að kynna sér það nánar. Hanna Katrín sagði að minnihlutinn gæti sjálfum sér um kennt að málið væri nú á dagskrá. Hann hafi óskað eftir meiri tíma til að kynna sér stjórnarfrumvarp um lagareldi sem hún muni mæla fyrir á eftir.vísir/vilhelm Jón Gunnarsson kom aftur í ræðustól og taldi allt þetta mál með hinum mestu endemum. Að klára ætti umræðu um þetta risastóra mál, níutíu greinar um lagareldi, og þá bæri það upp á sama tíma og Búnaðarþing væri að störfum? Og Guðlaugur Þór mætti aftur og leiðrétti sjálfan sig, hann sagði þetta hefð sem hefði verið frá 1899. „Nú er brotið blað. Ég sé að stjórnarliðar hlæja, það segir allt um stöðuna.“ Guðlaugur Þór sagði að góð samstaða hefði verið um þessa hefð allt þar til nú, að „ég á þetta, ég má þetta-ríkisstjórnin“ kæmi saman og segði að sér gæti ekki staðið meira á sama.
Alþingi Landbúnaður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Leita karlmanns á sjötugsaldri Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Þúsunda saknað og tíminn að renna út Erlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Fleiri fréttir Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Leita karlmanns á sjötugsaldri Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Sjá meira