„Gaman að hann hafi tekið eftir mér þar“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 25. mars 2026 10:03 Alfa Brá gengur til liðs við Thuringen í sumar. vísir / sigurjón Handboltakonan Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín heillaði þýskan þjálfara á HM með íslenska landsliðinu og flytur í sumar til Þýskalands, þar sem kærasti hennar spilar einnig.
Alfa Brá hefur spilað hjá Fram síðustu þrjú ár og með góðri spilamennsku öðlaðist hún sæti í íslenska landsliðinu. Það var einmitt þar, í leik með landsliðinu á HM í Þýskalandi, sem þjálfari þýska stórliðsins Thuringen tók fyrst eftir henni. „Já það er gaman að hann hafi tekið eftir mér þar. Svo var hann bara í samræðum við umboðsmanninn minn og þegar ég fékk þetta tækifæri varð ég strax spennt. Þetta er flottur klúbbur og ég er mjög spennt fyrir þessu,“ sagði Alfa en vissi hún að það væri verið að fylgjast með henni á HM? „Nei en auðvitað er þetta stór vettvangur og þangað koma liðin til að fylgjast með og skoða leikmenn. Þannig að það kemur manni ekkert á óvart en maður var ekkert að pæla í því.“ Um er að ræða risastórt skref því Thuringen er eitt af toppliðunum í þýska handboltanum og varð Evrópudeildarmeistari í fyrra, en góður handbolti var ekki það eina sem heillaði Ölfu þegar hugmyndin um að flytja til Þýskalands kom upp. Kærasti hennar, landsliðsmaðurinn Reynir Þór Stefánsson, spilar einnig í Þýskalandi með liði Melsungen. „Ég valdi nú kannski ekki út frá því en auðvitað er það bónus að vera nálægt kærastanum mínum í Þýskalandi, en það var ekki endilega það sem gerði útslagið… Þetta er svona einn og hálfur klukkutími á milli bæja en við ætlum að reyna að búa þarna í miðjunni. Það er þess virði, þó maður þurfi að keyra smá.“ Skiptin til Thuringen ganga ekki formlega í gegn fyrr en í sumar og Alfa er enn leikmaður Fram en hún mun ekki spila meira með liðinu vegna meiðsla í baki. „Það eru þvílík vonbrigði að detta út svona í lok tímabils og missa af úrslitakeppninni. Þær eiga einmitt leik núna á laugardaginn [gegn ÍR í umspilinu] og það er bara mjög vont að vera ekki að spila með þeim,“ sagði Alfa en hún væntir þess að vera orðin góð fyrir undirbúningstímabilið með Thuringen. Fjallað var um félagaskipti Ölfu Brár í Sportpakka Sýnar í gærkvöldi. Innslagið má sjá í spilaranum að ofan.
Olís-deild kvenna Fram Þýski handboltinn Landslið kvenna í handbolta HM kvenna í handbolta 2025 Mest lesið Hættur í landsliðinu þar til skipt verður um þjálfarateymi Fótbolti Blaðamannafundi lauk skyndilega með sorglegum fréttum Fótbolti „Ha? Hvernig getur það verið?“ Sport Móðir NFL-stjörnu fannst látin og bróðir hans ákærður fyrir morð Sport Hnakkrifust en bjuggu svo til jöfnunarmarkið saman Fótbolti Ótrúleg endurkoma hjá Belgum og Tielemans sýndi stáltaugar Fótbolti Már getur andað aftur: „Ég bara man eiginlega ekki eftir þessari tilfinningu“ Sport „Leyfið börnunum að vaka“ Fótbolti „Ég er farinn“ Íslenski boltinn Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark Körfubolti Fleiri fréttir Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Sjá meira