Þungaflutningarnir með þeim mestu á Íslandi Kristján Már Unnarsson skrifar 25. mars 2026 22:10 Vindmyllunum verður skipað á land í Þorlákshöfn. Enercon Einhverjir mestu þungaflutningar sem sést hafa á íslenska vegakerfinu fara fram á Suðurlandi fyrri hluta sumars þegar risastórar vindmyllur verða fluttar frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga.
Í kvöldfréttum Sýnar mátti sjá hvernig Færeyingar fóru að þegar þeir fluttu álíka stórar vindmyllur upp á fjallið ofan Þórshafnar fyrir fjórum árum. Þá þurfti vörubílahlössin til að víkka beygjur og styrkja vegkanta. Og nú er komið að því að Íslendingar verði vitni að slíkum stórflutningum. Á Selfossi komu yfir fimmtíu manns saman í dag til að stilla saman strengi á vinnustofu sem Landsvirkjun efndi til. Þeir komu frá aðilum sem tengjast flutningunum, eins og frá viðkomandi sveitarfélögum, Vegagerðinni, veitufyrirtækjum og lögreglunni, sem stýrir flutningunum. Leiðin sem vindmyllurnar verða fluttar. Svörtu tölurnar tákna þá staði þar sem víkka þarf gatnamót eða styrkja vegi.kort/Landsvirkjun „Ég held að þeir séu upp undir eitthundrað metra langir, lengstu bílarnir. Það segir sig sjálft að þeir þurfa svolítið svæði til þess að ná beygjum,“ segir Garðar Már Garðarsson, aðalvarðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi. „Það eru framkvæmdir í gangi, sérstaklega á gatnamótum, til þess að þetta sé hægt. Eins og vegakerfið okkar er væri þetta ekki hægt. Það er bara vinna sem er í gangi til þess að allt komist snurðulaust áfram,“ segir Garðar Már. Garðar Már Garðarsson er aðalvarðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi.Lýður Valberg Flutningarnir hefjast í byrjun maímánaðar og standa yfir í sjö til tíu vikur. Þeir fara eingöngu fram að nóttu til sex nætur vikunnar. Skip flytja vindmyllurnar til Þorlákshafnar og þar taka flutningabílar við farminum. Stærstu stykkin, vindmyllublöðin, eru 68 metra löng. Sigurgeir Björn Geirsson yfirverkefnisstjóri í Vaðölduveri, vindmyllugarði Landsvirkjunar við Sultartanga.Lýður Valberg „Þetta er með mestu flutningum sem við höfum séð á Íslandi,“ segir Sigurgeir Björn Geirsson, yfirverkefnisstjóri Landsvirkjunar í Vaðölduveri. „Við höfum náttúrulega flutt mjög stóran vélbúnað upp í Kárahnjúka og upp á Þjórsársvæðið og fyrir norðan. En þetta er bara svo mikið núna. Ein vindmylla kemur í það mörgum yfirstærðarhlutum sem þarf að flytja frá Þorlákshöfn og upp í Vaðöldu. Það er í raun og veru eini munurinn,“ segir Sigurgeir. Vindmylluspaðarnir eru 68 metra langir.Enercon Þar sem flutningarnir fara fram að næturlagi er ekki búist við að þeir trufli umferð að ráði. „Það verða ekki miklar lokanir í kringum þetta þannig að á þeim kafla sem flutningurinn fer fram hverju sinni, þá verður hæg umferð. En við reynum bara að liðka fyrir umferð og hleypa bílum fram hjá ef röð myndast fyrir aftan. En við gerum sem sagt ekki sérstaklega ráð fyrir að það verði vandamál, vegna flutningstímans að nóttu til,“ segir aðalvarðstjórinn á Suðurlandi. Vindmyllurnar rísa neðan Sultartangastíflu, í svokölluðu Vaðölduveri. Neðst til vinstri sést stöðvarhús Sultartangavirkjunar.Landsvirkjun Og Landsvirkjunarmenn biðja fólk um að sýna biðlund. „Við verðum fyrir á næturnar. Í mjög afmarkaðan tíma. Og bara að fólk sýni því bara ákveðna þolinmæði. Frá byrjun maí og fram í enda júní,“ segir yfirverkefnisstjóri Vaðölduvers.
Vindorka Landsvirkjun Orkumál Lögreglan Ölfus Árborg Flóahreppur Rangárþing ytra Ásahreppur Skipaflutningar Vindorkuver við Vaðöldu Tengdar fréttir Semja við Ístak um gerð mannvirkja fyrir fyrsta vindorkuver landsins Landsvirkjun hefur samið við Ístak hf. um ýmis mannvirki fyrir Vaðölduver, eða Búrfellslund, þar sem fyrsta vindorkuver landsins rís. Upphæð samningsins nemur rúmum 6,8 milljörðum króna. 28. apríl 2025 13:28 Búrfellslundur verður Vaðölduver Landsvirkjun hefur ákveðið að gefa fyrsta vindorkuveri landsins sem nú er að rísa heitið Vaðölduver. Hingað til hefur það gengið undir vinnuheitinu Búrfellslundur en þar eiga að rísa 28 vindmyllur á næstu tveimur árum. 21. febrúar 2025 08:35 Vindmyllur orðnar helsti raforkugjafi Færeyinga Umskipti hafa orðið í raforkumálum Færeyinga með opnun nýs vindorkuvers í byrjun mánaðarins og fá þeir núna í fyrsta sinn meirihluta raforku sinnar úr sjálfbærum orkulindum. Í fyrra komu yfir sextíu prósent raforkunnar úr dísilrafstöðvum en núna er vindurinn orðinn stærsti orkugjafinn. 18. desember 2022 22:22 Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu Innlent Fleiri fréttir „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Sjá meira
Semja við Ístak um gerð mannvirkja fyrir fyrsta vindorkuver landsins Landsvirkjun hefur samið við Ístak hf. um ýmis mannvirki fyrir Vaðölduver, eða Búrfellslund, þar sem fyrsta vindorkuver landsins rís. Upphæð samningsins nemur rúmum 6,8 milljörðum króna. 28. apríl 2025 13:28
Búrfellslundur verður Vaðölduver Landsvirkjun hefur ákveðið að gefa fyrsta vindorkuveri landsins sem nú er að rísa heitið Vaðölduver. Hingað til hefur það gengið undir vinnuheitinu Búrfellslundur en þar eiga að rísa 28 vindmyllur á næstu tveimur árum. 21. febrúar 2025 08:35
Vindmyllur orðnar helsti raforkugjafi Færeyinga Umskipti hafa orðið í raforkumálum Færeyinga með opnun nýs vindorkuvers í byrjun mánaðarins og fá þeir núna í fyrsta sinn meirihluta raforku sinnar úr sjálfbærum orkulindum. Í fyrra komu yfir sextíu prósent raforkunnar úr dísilrafstöðvum en núna er vindurinn orðinn stærsti orkugjafinn. 18. desember 2022 22:22