Uppgjörið: Grindavík-Þór Þ. 108-94 | Þórsarar fallnir Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 26. mars 2026 20:44 Lárus Jónsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar Deildarmeistarar Grindavíkur létu gestina úr Þorlákshöfn ekki spilla fyrir sér á hátíðardegi og tóku við deildarmeistarabikarnum eftir fjórtán stiga sigur á Þórsurum, 108-94. Tapið þýddi að Þórsarar eru fallnir úr úrvalsdeild karla eftir fimmtán ára veru þar. Unnsteinn Rúnar Kárason fór á kostum og skoraði 26 stig fyrir Grindavík á aðeins átján mínútum. Fyrsti leikhluti fór rólega af stað og var að mestu jafn. Smám saman náðu Grindvíkingar tökum á leiknum og leiddu 22-20 eftir fyrsta leikhlutann. Jeremy Pargo og Jordan Semple náðu einstaklega vel saman í öðrum leikhluta og voru með sýningu sóknarlega. Bilið stækkaði fljótlega og Þórsarar virtust andlausir og vantaði kraft í leik sinn. Heimamenn fóru þá með 12 stiga forystu inn í hálfleikinn, 54-42. Grindvíkingar dreifðu mínútunum vel í seinni hálfleik og spilaðu á tímabili einungis með íslenska leikmenn inn á. Það sauð allt upp úr í leikhlutanum á milli Davíðs Ágústssonar, leikmanni Þórs, og Vals Orra, leikmanns Grindavíkur en báðir fengu óíþróttamannslegar villur fyrir. Það var svo nokkuð ljóst að Grindvíkingar myndu sigla sigrinum heim í fjórða leikhluta. Lykilmenn voru settir á bekkinn og fengu ungir leikmenn að spreyta sig. Patrekur Atlason, leikmaður Grindavíkur, skoraði þá sín fyrstu stig í úrvalsdeild með huggulegri þriggja stigi körfu við mikinn fögnuð Grindvíkinga. Grindvíkingar fögnuðu þá deildarmeistaratitlinum með sínum stuðningsmönnum í lok leiks og tók liðið við bikarnum. Atvik leiksins Það hlýtur að vera innkoma Unnsteins í kvöld. Þvílík frammistaða hjá drengnum í lokaumferðinni. Stjörnur og skúrkar Unnsteinn Rúnar Kárason kom eins og stormsveipur inn í lið Grindavíkur í kvöld og nýtti tækifærið sitt vel. Hann skilaði 26 stigum og endaði stigahæstur á vellinum. Stemning og umgjörð Umgjörðin og stemningin í Grindavík er alveg einstök. Það er eitthvað alveg magnað við þetta samfélag og ég trúi því að það verði alvöru stemning í úrslitakeppninni í Grindavík. Dómarar Kristinn Óskarsson, Birgir Örn Hjörvarsson og Ingi Björn Jónsson voru á vaktinni í kvöld. Lítið verið að rífast við dómarana í kvöld og lítið af vafamálum. Bónus-deild karla Grindavík Þór Þorlákshöfn