Grindavík

Grindavík

Mannfjöldi: 1.246 (2025). Flatarmál: 423 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Verður líkam­leg og and­leg bar­átta

„Þetta leggst bara mjög vel í mig og alla leikmenn. Þetta er náttúrulega stærsta prófraunin til þessa. Þannig að vonandi erum við bara vel undirbúnar og hérna tilbúnar í þetta. Þetta er náttúrulega bara líkamleg og andleg barátta,“ segir Pétur Már Sigurðsson, þjálfari Grindavíkur í Bónus-deild kvenna, en Íslandsmeistarar Njarðvíkur taka á móti Grindvíkingum í stórleik 6. umferðarinnar í kvöld.

Sport

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Sé ekki spurning um að finna Lúð­vík heldur sækja hann

Bróðir Lúðvíks Péturssonar, sem lést þegar hann féll niður um jarðfall í Grindavík árið 2024, segir ákvörðunina um að hætta að leita að líkamsleifum Lúðvíks vonbrigði og að hún kalli á svör. Hann hafi sjálfur lagt til lausnir en þær hafi ekki verið teknar til greina. Hann, fyrir hönd fjölskyldunnar, muni beina erindi að nýju til bæjarstjórnar Grindavíkur.

Innlent
Fréttamynd

„Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“

Leit verður hafin nú í morgunsárið að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar, sem féll niður um jarðfall í Grindavík í janúar 2024. Bróðir hans gagnrýnir hversu langan tíma hefur tekið að hefja leit og telur að rannsaka þurfi aðdraganda þess að Lúðvík féll í sprunguna betur. Fjölskyldan voni að hann finnist í dag og þau geti jarðað hann. Rætt var við Elías í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst

„Stundum sleppi ég því að segja að ég sé tvíburi, því þá þarf ég alltaf að segja alla söguna. Ég þarf að hugsa: Á ég að nefna þetta? Og ef ég geri það, á ég þá að láta eins og hann sé enn á lífi eða segja frá því að hann sé látinn? Stundum sleppi ég þessu bara. Það er skrítið, því ég er auðvitað enn tvíburi þótt hann sé látinn.“

Lífið
Fréttamynd

„Þetta er bara einn leikur í einu“

Ellen Nyström átti frábæran leik fyrir Grindavík í kvöld þegar þær lögðu nágranna sína af velli í Bónus deild kvenna í kvöld. Ellen Nyström endaði með tvöfalda tvennu í 89-75 sigri Grindavíkur.

Sport
Fréttamynd

Stefna á að hefja leit í nóvember

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að í næsta mánuði verði mögulega hægt að hefja leit að jarðneskum leifum manns sem féll ofan í sprungu í Grindavík árið 2024. Nú sé unnið að mótvægisaðgerðum.

Innlent
Fréttamynd

Kane brást illa við gríni Val­sarans

Cedrick Bowen, leikmaður Vals í Bónus deild karla í körfubolta, gerir stólpagrín að leit Grindvíkinga að DeAndre Kane í myndbandi sem hann birti á Instagram. Kane virðist ekki hafa tekið vel í myndbandið miðað við ummæli sem hann skrifaði við það.

Körfubolti
Fréttamynd

Bjarni Jó hættur

Reynsluboltinn Bjarni Jóhannsson er hættur þjálfun og yfirgefur sviðið sem leikjahæsti þjálfari Íslandssögunnar til þessa. 

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Tárin streymdu niður vangana á mér“

„Tárin streymdu niður vangana á mér. Pabbi kveikti á útvarpinu og stillti á fréttirnar sem fjölluðu næstum því bara um Grindavík og jarðskjálftana. Út um gluggann horfði ég á hraunið okkar. Mér hafði alltaf þótt það fallegt en nú var það líka óhugnanlegt.“

Lífið
Fréttamynd

Eld­gos á­fram lík­legasta sviðs­myndin en ó­ljóst hve­nær það yrði

Nýtt hættumat tók gildi í dag, þann 30. september, en hættuvægi vegna sprungna og jarðfalls innan Grindavíkur hefur verið endurmetið með tilliti til sprunguviðgerða. Við breytinguna lækkar heildarhættustig fyrir Grindavík en heildarhætta er áfram metin töluverð. Nýtt kvikuhlaup gæti endað með eldgosi en það er ekki hægt að segja til um hvenær það gæti orðið.

Innlent
Fréttamynd

Grinda­vík hóf tíma­bilið á stór­sigri

Þrír leikir fóru fram í fyrstu umferð Bónus deildar kvenna í kvöld. KR hóf tímabilið á sigri gegn Stjörnunni, í Síkinu lagði Tindastóll lið Keflavíkur og þá vann Grindavík stórsigur gegn Ármanni í Laugardalshöllinni. 

Körfubolti
Fréttamynd

„Mjög stór og mikil­væg niður­staða fyrir okkur“

Tilkynnt var um niðurstöður nýs endurskoðaðs áhættumats fyrir Grindavík á þriðjudag. Ásrún Helga Kristinsdóttir forseti bæjarstjórnar Grindavíkur segir nýjan tón hafi verið í samtali við stjórnvöld síðustu vikur og að hlustað hafi verið á reynslu og staðkunnáttu Grindvíkinga sjálfra.

Innlent
Fréttamynd

Nýtt á­hættu­mat: Bjóða Grind­víkingum að kaupa húsin til baka

Niðurstöður endurskoðaðs áhættumats fyrir Grindavík benda til þess að forsendur fyrir varanlegri búsetu og skólahaldi í Grindavík séu ásættanlegar að því gefnu að skilgreindar öryggisforsendur séu uppfylltar og nauðsynlegar öryggisráðstafanir virkar. Ríkisstjórnin mun hefja vinnu við að bjóða Grindvíkingum að kaupa aftur íbúðarhúsnæði í bænum.

Innlent
Fréttamynd

„Ég átti aldrei að lifa þetta af“

Haukur Grønli slökkviliðsmaður hefur stofnað stuðningshóp fyrir fólk sem hefur lent í heilablóðfalli. Fyrsti fundurinn er á morgun. Sjálfur er Haukur að jafna sig eftir slíkt áfall í október 2024. Hann segir að eftir áfallið sé hann eins og Dóra í Nemó og að hann hafi upplifað mikla auðmýkt eftir veikindin. 

Innlent