Vistum fanga í íbúðarhverfum Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar 26. mars 2026 17:31 Afstaða-réttindafélag hélt vel sóttan kynningarfund fyrr í mánuðinum þar sem ný og byltingarkennd nálgun í fangelsismálum var til umræðu. Á fundinum var evrópska samstarfsverkefnið og hreyfingin RESCALED kynnt, en markmið hennar er að skipta út stórum fangelsum fyrir smærri og samfélagsnálægari vistunareiningar. Tilkynnt var á fundinum að Afstaða muni formlega ganga í hreyfinguna í næsta mánuði. Fundurinn var vel sóttur af fulltrúum hinna ýmsu stofnana og félagasamtaka, meðal annars úr velferðar- og dómskerfinu. Roger Nilsen, varaforseti RESCALED, hélt erindi sem gerður var afar góður rómur að. Hann benti á að íslenska refsivörslu kerfið væri yfirfullt og ítrekaði mikilvægi þess að hugsa út fyrir rammann. „Af hverju ættum við ekki, í staðinn fyrir að byggja fleiri öryggisfangelsi, að byggja fangelsi sem geta hjálpað fólki aftur inn í samfélagið og gert það að betri borgurum" spurði Nilsen og bætti við að slík nálgun væri jafnframt ódýrari bæði í byggingu og rekstri. Guðbjörg Sveinsdóttir, ráðgjafi hjá Afstöðu, tók í sama streng og sagði núverandi tilhögun fangelsismála barn síns tíma og byggða á 19. aldar hugmyndafræði um að læsa fólk inni fjarri samfélaginu. Hún benti á að um helmingur fanga snúi aftur í fangelsi innan þriggja til fimm ára. Með því að færa vistun í smærri einingar og inn í íbúðahverfi gætu fangar nýtt sér þjónustu nærumhverfisins og stuðlað að raunverulegri endurhæfingu. Aðspurð um mögulega andstöðu almennings við að fá slík úrræði í sitt nærumhverfi var hún skýr: „Það samfélag sem hugsar þannig og hagar sér þannig þarf líka að fara í endurhæfingu og hugsa hlutina svolítið upp á nýtt." Með inngöngu sinni í RESCALED tekur Afstaða sögulegt skref í íslenskum fangelsismálum. Félagið hefur þegar lagt fram kröfu um að stjórnvöld hverfi frá áformum um dýrt öryggisfangelsi að Stóra-Hrauni í núverandi mynd. Þess í stað verði sveigjanleiki sem þegar er til staðar í lögum nýttur til að byggja upp kerfi sem skilar manneskjulegri og ódýrari niðurstöðu. Þar sem áhersla væri lögð á menntun, vinnu og tengsl við samfélagið. Afstaða ítrekar hér með þá kröfu sína. Höfundur er formaður Afstöðu-réttindafélags. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur Ingi Þóroddsson Fangelsismál Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar