Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Lovísa Arnardóttir skrifar 27. mars 2026 09:04 Tölvan lítur örlítið út eins og rifjárn. Epli.is Apple hefur hætt framleiðslu á Mac Pro-borðtölvu sinni og hefur fjarlægt tölvuna af vef sínum samkvæmt erlendum miðlum. Í fréttum 9to5 og Macrumours segir að Apple hafi greint frá því að ekki standi til að hanna nýja týpu af tölvunni eða nýtt módel.
Í frétt Macrumours segir að tölvan hafi síðast fengið uppfærslu árið 2023 þegar Apple bætti við M2 Ultra Apple-sílíkonörgjörva en að grind tölvunnar hafi ekki verið breytt frá því 2019. Tölvan hafi þó aldrei náð miklu flugi og það sé líklega vegna verðmiðans. Apple hafi í staðinn kynnt Mac Studio sem er minna tæki sem notar þó sama örgjörva. Frétt 9to5 og Macrumours. Á vef Epli.is má sjá að tölvan er ekki á lager og fæst aðeins í sérpöntun og kostar tæpar 1,4 milljónir. Apple Studio er heldur ekki til hjá Epli.is en kostar samkvæmt vefverslun tæpar 400 þúsund krónur. Munurinn er því verulegur. Í frétt Macrumours segir að Apple hafi verið í vandræðum með tölvuna allt frá árinu 2013 þegar hönnun hennar var breytt og að tölvan hafi ekki haldið í við tæknilega þróun. Apple hafi beðið notendur tölvunnar afsökunar en ekki kynnt nýja og betri týpu fyrr en 2019.
Apple Tækni Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira