„Vil sjá Keflvíkinga koma sér á þann stað sem þeir voru á“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. mars 2026 11:00 Sindri Snær Magnússon fylgist af aðdáun með leikfimitilþrifum Frans Elvarssonar. vísir/viktor Baldur Sigurðsson, sérfræðingur Stúkunnar, segir forgangsatriði fyrir Keflavík að festa sig aftur í sessi í efstu deild. Honum líst vel á hvernig Keflvíkingar hafa styrkt sig í vetur en hefur smá áhyggjur af varnarleik nýliðanna.
Keflavík er spáð tólfta og neðsta sæti Bestu deildar karla í árlegri spá íþróttadeildar Vísis og Sýnar. Keflavík vann sér sæti í Bestu deildinni með því að fara í gegnum umspil Lengjudeildarinnar í fyrra. Keflvíkingar eru því mættir aftur í deild þeirra bestu en þeir hafa þrisvar sinnum fallið úr henni síðan 2015. „Ég held að það sé bara eðlilegt að gera ekki of miklar væntingar. Mínar væntingar til minna gömlu félaga, sem ég hef smá tilfinningar til, er að þeir komi sér út úr þessu jójó dæmi sem þeir hafa verið í síðan að þeir féllu fyrst 2015 eftir að hafa verið lengi uppi. Það er búið að vera allt of mikið jójó síðan þá,“ sagði Baldur er hann var beðinn um að rýna í lið Keflavíkur. Klippa: Besta-spáin 2026 - 12. sæti „Ég sé alveg, skoðandi frammistöðu þeirra í vetur, hvað sem er að marka þær, og hópinn, að við munum alveg sjá þá vera þarna í neðri hlutanum. Þeir munu vera að berjast fyrir lífi sínu. En þeir eru samt með reynslu í hópnum, kjarna og mannskap sem getur gert það að verkum að þeir haldi sér uppi ef þeir springa út. Þeir eru komnir með Baldur Loga [Guðlaugsson]. Alghoul-bræðurnir [Muhamed og Halid] eru sameinaðir og það eru púsl sem þurfa að smella svo að þetta endi á því að þeir haldi sér uppi. Ég vil svo sjá Keflvíkinga koma sér á þann stað sem þeir voru á, að verða frambærilegt og gott efstu deildar lið.“ Krefjandi fyrir Ásgeir Orra Baldur segir nýliðana hafa gert vel á félagaskiptamarkaðnum í vetur en telur að þeir þurfi að gera aðeins meira á þeim vettvangi. „Mér hefur litist nokkuð vel á styrkingarnar eins og ég talaði um. Baldur Logi kom og ég er mjög hrifinn af honum. Hann er öflugur og hinn Alghoul-bróðirinn, Halid, var að koma og það er gaman að sjá hvernig hann mun plumma sig í efstu deild,“ sagði Baldur. „Talandi um að bæta við sig hefur maður smá áhyggjur af markmannsstöðunni og varnarleiknum í heild sinni. Ég hefði viljað sjá þá styrkja sig þar. Ég er ekki að tala um það að það þurfi að skipta út Ásgeiri Orra [Magnússyni] fyrst Sindri [Kristinn Ólafsson] er farinn út, en það verður krefjandi fyrir hann að koma og sýna sig eftir meiðsli. Það er alltaf þannig að þegar lið eru að berjast fyrir lífi sínu þarf markmaðurinn að eiga sitt besta tímabil og hann mun þurfa að vinna einhverja leiki fyrir þá. En ég hefði viljað sjá þá styrkja sig aðeins í vörninni.“ Keflavík sækir KR heim í 1. umferð Bestu deildar karla klukkan 17:00 sunnudaginn 12. apríl.
Besta deild karla Keflavík ÍF Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Fleiri fréttir „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Eiður Smári þjálfar KA Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar nálgast annað sætið Sjóðheit Ída Marín kveður FH Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu „Þetta gekk eins og í sögu“ „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ „Gott að bjarga sjálfum sér og verja þetta“ „Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ „Langar bara að verða betri í fótbolta“ Helgi Guðjóns: Tökum eldgömlu klisjuna um einn leik í einu Uppgjörið: ÍBV - ÍA 1-3 | Með þrjú stig upp á fasta landið Uppgjörið: FH - Víkingur R. 2-4 | Fyrsta tap FH í áttatíu daga Uppgjörið: KR – Breiðablik 3-3 | Stig sem skilur lítið eftir sig Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm „Horfum bara á að enda tímabilið í topp sex“ „Þurfum að læra að spila leiki af þessari stærðargráðu“ Sjá meira