Íslenski boltinn

Sel­foss missir mikið efni

Andri Broddason skrifar
839179549_18434113954182485_9115376314502927418_n
Alexander Breki Brynjarsson/Selfoss Fótbolti

Guðmundur Stefánsson hefur skrifað undir samning við Fram og mun spila í Bestu deildinni á næsta tímabili. Hann er uppalinn hjá Selfossi og er sárt fyrir félagið að missa ungan og efnilegan leikmann.

Guðmundur er aðeins 20 ára gamall og var að klára sitt þriðja tímabil í meistaraflokki. Hann byrjaði tímabilið í fyrra með Selfossi en var lánaður til Ægis þar sem hann kláraði tímabilið. Í ár stækkaði hlutverk hans og varð hann mikilvægur leikmaður Selfoss í 2. deildinni.

Hann spilaði 34 leiki fyrir Selfoss í sumar og skoraði í þeim sex mörk og virðist vera mikils metinn meðal Selfyssinga. Hann var valinn besti miðjumaðurinn á lokahófi félagsins ásamt því að fá viðurkenningu fyrir að hafa náð mestu framförum innan liðsins.

Guðmundur heldur nú í eitt af stærstu liðum landsins, Fram ,en hann gleymir ekki félaginu sem ól hann upp.

„Ég er þakklátur fyrir tímann á Selfossi og allt fólkið sem ég hef kynnst á leiðinni. Liðsfélagar, þjálfarar, fólkið í kringum félagið og allir sem hafa mætt á völlinn og stutt okkur – takk fyrir allt,“ er haft eftir Guðmundi í tilkynningu frá Selfossi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×