„Fólk var rosalega hrætt þegar það kom sjónvarp“ Smári Jökull Jónsson skrifar 27. mars 2026 22:24 Þórhildur Halldórsdóttir er dósent við sálfræðideild HR og sérfræðingur í klínískri barnasálfræði. Vísir/Bjarni/Getty Doktor í sálfræði segir vísindin benda til að börn sem glími við andlega erfiðleika séu líklegri til að vera meira á samfélagsmiðlum. Þá skorti rannsóknir um hvort aldurstakmörk fyrir notkun slíkra miðla skili árangri.
Dómur féll í Bandaríkjunum í vikunni þar sem andleg veikindi ungrar konu voru rakin til notkunar á samfélagsmiðlunum Instagram og Youtube. Í dómnum segir að smáforritin séu ávanabindandi og vísvitandi hönnuð á þann hátt og þurftu fyrirtækin að greiða skaðabætur. Sérfræðingur í klínískri barnasálfræði þekkir dæmi um ungmenni hér á landi sem glími við fíkn tengda tölvuleikjum eða samfélagsmiðlum. „Þá er aftur spurningin, hænan eða eggið. Hvað kom fyrst?“ segir Þórhildur Halldórsdóttir, doktor í sálfræði og dósent við sálfræðideild HR. „Voru þetta erfiðleikar sem barnið var nú þegar að upplifa og þá er það inni á samfélagsmiðlum meira eða er það öfugt? Í rauninni segja vísindin að það sé líklegra að það séu þeir sem hafa tilhneigingu til að þróa með sér andlega vanlíðan sem eru að sækjast meira í þessi tæki.“ Búið að opna og erfitt að fara til baka Þórhildur segir skorta rannsóknir um hvort börn og ungmenni séu tilbúin að nota samfélagsmiðla. Aldursviðmið miðlanna séu miðuð út frá persónuvernd en ekki vísindum um þroska þessa hóps. Þá sé erfitt að segja til um hvort bann við notkun samfélagsmiðla skili árangri en í haust var lögð fram tillaga á Alþingi um aldurstakmark samfélagsmiðla, leið sem fleiri lönd hafa farið. „Við erum svolítið búin að opna á þetta og ég held að það sé alltaf flókið að fara til baka. Ungmenni eru ofboðslega sniðug og ef þau langar að gera eitthvað þá finna þau leiðir til þess. Það er líka hægt að tala um það að þegar maður er búinn að hækka [aldurs]viðmiðið og þau eru að komast inn á þetta yngri en viðmiðið er, þá er mögulega búið að taka af einhverjar hömlur sem voru fyrir yngra viðmiðið.“ „Viðmiðin geta haft verndandi hömlur inni í sér þó forritin séu langt frá því að vera fullkomin. Auðvitað þarf að vera með skýr viðmið fyrir þessi fyrirtæki um hvað sé í lagi og hvað ekki.“ Vantar almennilegar rannsóknir Áður en ákvarðanir séu teknar um boð og bönn þurfi meiri þekkingu. „Ég held klárlega að við höfum sofið á verðinum hvað varðar að gera almennilegar rannsóknir á þessu. Þetta er líka þróunin með tækni, fólk var rosalega hrætt þegar það kom sjónvarp.“ „Þá var örugglega verið að velta fyrir sér hvort allir hefðu sofið á verðinum varðandi að ungmennin væru að eyða of miklum tíma við að horfa á vídeo,“ segir Þórhildur að lokum.
Samfélagsmiðlar Börn og uppeldi Heilbrigðismál Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Tómas kominn aftur til starfa Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira