Ósætti vegna dymbilvikulokana í leikskólum Garðabæjar Freyja Þórisdóttir skrifar 30. mars 2026 22:30 Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, segir almennt hafa ríkt sátt þegar breytingarnar voru samþykktar. Samsett mynd/Vísir Foreldrar leikskólabarna í Garðabæ setja út á lokanir í dymbilvikunni. Útfærsla Reykjavíkurborgar sé hentugri en þar geti foreldrar valið hvort þeir nýti leikskólapláss eða ekki. Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, segir breytingarnar hafa verið til þess að minnka álag á leikskólastarfsmenn.
Dymbilvikan er gengin í garð en hún hefur valdið foreldrum í Garðabæ talsverðum höfuðverk. Leikskólar í bænum eru lokaðir alla vikuna en það er í kjölfar breytinga sem voru samþykktar haustið 2023 og var ætlað að bæta starfsumhverfi leikskóla í Garðabæ. Rúnar Örn Birgisson birti í dag færslu í Facebook-hópnum Garðabær – íbúar þar sem hann segist ekki hrifinn af þessari útfærslu bæjarins og óskar eftir því að fá álit fleiri foreldra sem eru með börn á leikskóla í Garðabæ. Ummæli fjölmargra hafa safnast undir færslunni og eru þar langflestir á sama máli og Rúnar. Foreldrar í Garðabæ virðast flestir sammála Rúnari Erni Birsgissyni en hann er ekki sáttur við lokanir leikskóla í Garðabæ.Skjáskot/Facebook Meðal þeirra sem kusu að tjá sig um málið voru Þorbjörg Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi Garðabæjarlistans, sem er í minnihluta. Hún skrifar ummæli við færsluna þar sem hún vitnar í bókun sína sem hún lagði fram við samþykkt tillögunnar haustið 2023. „Við vonum svo sannarlega að tillögurnar skili tilætluðum árangri: Færri lokunum vegna manneklu, fleira starfsfólki á leikskólunum og þar með öruggari þjónustu fyrir fjölskyldur í bænum,“ eru lokaorð bókunarinnar. Þorbjörg Þorvaldsdóttir er bæjarfulltrúi Garðabæjarlistans.Aðsent Í samtali við fréttastofu segir Þorbjörg að hún standi við það að breytingarnar hafi verið til þess hugsaðar að létta á leikskólastarfsfólki en hún segir jafnframt að tryggja þurfi eftirfylgni með breytingunum og endurskoðun ef þörf er á. „Það var gerð könnun sem kom ágætlega út en mér hefur samt fundist vanta upp á eftirfylgni, til dæmis þarf að komast að því hvernig breytingarnar eru að virka fyrir einstæða foreldra og fólk sem starfar á vettvangi þar sem er erfitt að komast frá vinnu.“ „Það var rosalega skýrt ákall frá starfsfólki leikskólanna,“ Þorbjörg bætir við að hún telji breytinguna hafa haft góð áhrif á starfsfólk. Leikskólar í Reykjavík opnir Sum ummælanna kváðu á um að skólar í Reykjavík væru lokaðir alla vikuna, líkt og í Garðabæ. Hjördís Rut Sigurjónsdóttir, upplýsingafulltrúi á Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar, segir svo ekki vera. „Þessu er þannig háttað í Reykjavík að í skólum sem reknir eru af borginni eru svokallaðir skráningardagar í vikunni. Þar geta foreldrar ákveðið hvort þeir sendi börnin á leikskólann þessa tilteknu daga en því fylgir svo dagsgjald,“ segir Hjördís. Hún segir þó að sjálfstætt starfandi leikskólar geti haft þetta öðruvísi ef þeir telji ástæðu til en það sé þá gert í samtali við þann hóp foreldra sem sækir þaðan þjónustu. Skortur á starfsfólki Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, segir að ágætis sátt hafi náðst um breytingarnar. „Við vorum að bregðast við stöðu þar sem var verið að keppast um starfsfólkið en það var of mikið álag á leikskólunum og við sáum það í veikindafjarveru og svoleiðis,“ segir Almar. Hann segir Viðskiptaráð hafa kannað stöðuna og að það hafi komist að því að minnstar lokanir séu í Garðabæ. „Á sumrin getur fólk valið hvaða vikur það vill hafa í sumarfrí, leikskólarnir loka ekki,“ segir Almar. Hann segist að lokum fullum fetum „að þegar á heildina sé litið standi Garðabær mjög framarlega, umræða meðal foreldra sé eðlileg en þetta hafi þurft til að allt sé sanngjarnt“.
Garðabær Leikskólar Skóla- og menntamál Páskar Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum Innlent Fleiri fréttir Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Sjá meira