Tinda­stóll - Njarð­vík 58-88 | Njarð­vík verður með sópinn á lofti í næsta leik

Arnar Skúli Atlason skrifar
Danielle Rodriguez, leikmaður Njarðvíkur. 
Danielle Rodriguez, leikmaður Njarðvíkur.  Vísir/Anton Brink

Njarðvík er komið með 2-0 forystu í einvíginu gegn Tindastóli eftir 58-88 sigur í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum Bónus deildar kvenna.

Njarðvíkurkonur geta þar með sópað Stólunum í sumarfrí þegar liðin mætast í þriðja leiknum næsta miðvikudag.

Ólíkt fyrsta leik liðanna lenti Njarðvík ekki í neinum vandræðum með Tindastól í dag. Heimakonur skoruðu aðeins 22 stig í fyrri hálfleik og sáu sigurinn aldrei fyrir sér.

Danielle Rodriguez og Brittany Dinkins voru gjörsamlega frábærar og Tindastóll átti í gríðarlegum erfiðleikum með að stoppa þær. Tindastóll komst ekki lönd né strönd í fyrri hálfleik á meðan Njarðvík átti auðvelt með að finna opna leikmenn um allan völl og skaut Tindastól í kaf. 

Njarðvík byrjaði betur í seinni hálfleik einnig og hélt sínum leik áfram. Tindastóll vaknaði þó aðeins en náði aldrei að gera þetta að leik. Danielle og Brittany héldu áfram að keyra yfir Stólana og fengu hjálp frá Huldu Maríu Agnarsdóttir og Helenu Rafnsdóttir sem voru að setja skotin sín ofan í í kvöld. Lokatölur í kvöld voru 58-88 fyrir Njarðvík.

Tindastóll skutu herfilega í kvöld og voru 1 af 26 í þriggjastiga sem gerir 3% nýtingu og það er erfitt að vinna körfubolta leik með svoleiðis skotnýtingu. Njarðvík fer núna með 2-0 forystu aftur á sinn heimavöll og geta sópað Tindastól út í næstu umferð.

Atvik leiksins

Byrjunin á leiknum hjá Njarðvík var góð og þær skyldu Tindastól eftir í upphafi leiks. Munurinn var orðinn mikill eftir upphafsmínúturnar og erfitt a var að vinna þetta til baka aftur.

Stjörnur

Hjá Tindastól var Marta Hermida öflug í kvöld með 27 stig ig 5 stoðsendingar.

Hjá Njarðvík var Danielle Rodriguez frábær 23 stig og 10 fráköst, Brittany Dinkins skilaði 16 stigum og 8 fráköstum og Hulda María Agnarsdóttir var með 15 stig.

Dómararnir

Þeir stóðu sig vel í kvöld. Ekki erfiður leikur að dæma og þeir komust vel frá þessu.

Stemmingin og umgjörð

Það var kátt í höllinni í kvöld. Það voru áhorfendur frá Njarðvík sem og Tindastól. Þá hefði samt verið gaman að sjá aðeins fleiri í kvöld. Vonandi ná Tindastóll að knýja fram auka leik svo fólk geti fjölmennt.

Viðtöl

„Ef þú færð opið skot þá tekurðu það“

„Við mættum óttalausar til leiks. Þetta er erfiður heimavöllur að sækja en við mættum óttalausar og kláruðum þetta af fagmennsku,“ sagði Danielle Rodriguez, leikmaður Njarðvíkur, eftir leik.

„Leikplanið var bara að finna besta mögulega skotið. Við reyndum að sækja á ákveðin mannamismun þegar færið gafst en svo snerist þetta líka bara um að hreyfa boltann vel og ef þú færð opið skot þá tekurðu það.“

Njarðvík getur sópað Tindastóli í sumarfrí með sigri í næsta leik.

„Við munum bara einbeita okkur að því að vinna leikinn. Við vitum að Tindastóll er með gott lið, góðan þjálfara og orkumikla leikmenn. Ég býst ekki við því að þær muni bara lúffa fyrir okkur, þannig að við verðum að halda uppi sömu ákefð og við sýndum í dag.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira