„Fallegt að sjá liðið stíga saman upp og taka skref áfram“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 2. apríl 2026 21:59 Mirz Bulic var öflugur fyrir Keflavík í kvöld. Paweł/Vísir Keflavík tók forystu í einvígi sínu gegn Valsmönnum í kvöld þegar fyrsti leikur fór fram í N1 höllinni á Hlíðarenda í kvöld. Keflavík fór með gríðarlega sterkan þriggja stiga sigur 75-78.Mirza Bulic ræddi við Andra Már Eggertsson eftir leikinn. „
Þetta var erfiður leikur og þú sérð það þegar úrslitakeppnin byrjar þá eru ekki lengur 100 stig því núna snýst þetta allt um vörnina, fráköstin og að gera þetta allt saman“ sagði Mirza Bulic leikmaður Keflavíkur eftir sigurinn í kvöld en hann endaði með 25 stig í kvöld. „Okkar lið átti við mörg vandamál yfir allt tímabilið, mikið af meiðslum og það er mjög fallegt að sjá liðið stíga saman upp og taka skref áfram og taka fyrsta sigurinn. Núna verðum við bara að gera okkur klára fyrir næsta leik“ Andri Már Eggertsson sýndi Mirza Bulic brotið sem hann sótti á Keyshawn Woods undir lok leiks þar sem dæmd var óíþróttamannsleg villa og var stór dómur sem fór langt með sigurinn fyrir Keflavík. „Þú sérð á endursýningum að ég næ að fela boltann mjög vel og hann slær mig svo beint í andlitið eða kjálkann. Þetta var mjög snjallt hjá mér og mjög kærulaust frá honum [Keyshawn Woods]“ „Ég veit að hann er ekki sú týpa sem myndi meiða eða vera með óheiðarlega takta sem myndi meiða einhvern en þetta var mjög vel gert hjá mér og gaf okkur gott tækifæri“ Aðspurður hvort að hann hefði eitthvað kryddað þessi viðbröð sagði Mirza Bulic ekki svo vera. „Nei nei, ég er frá Bosníu svo mér er alveg sama. Það verður allt í lagi með mig“ Keflavík átti í tómu brasi í fyrri hálfleiknum og skoraði aðeins 32 stig en Mirza Bulic skoraði 16 þeirra. „Þetta snýst um að finna einhverja yfirburði. Ég verð að gefa hrós á mitt lið fyrir að leita af mér þegar ég get gert mikinn skaða á meðan vörnin þeirra er að breytast. Þetta snýst allt um liðsfélagana sem bjuggu til svæði og gáfu mér tækifæri einn á einn og ég var heppinn í kvöld að klára það“ Keflavík mættu mun grimmari út í seinni hálfleikinn en hvað var það sem breyttist? „Við stígum upp. Í fyrri hálfleik var liðið okkar smá stressað og við höfum ekki æft með allt liðið nánast allt tímabilið og við þurfum þetta og í seinni hálfleik þá held ég að það sem small saman var bolta hreyfingin, að finna réttu skotmennina, finna réttu möguleikana fyrir okkur sóknarlega hvort sem það var fyrir innan eða utan og við fundum það“ „Við hittum líka úr erfiðum skotum og við hittum líka úr góðum skotum og þess vegna náðum við að koma til baka og við gáum unnið þennan leik“ sagði Mirza Bulic
Keflavík ÍF Körfubolti Bónus-deild karla Mest lesið Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Fótbolti Dramatískt sigurmark tryggði Þjóðverjum farseðil í 32-liða úrslit Fótbolti Flugu í 22 tíma á rellu án klósetts til að sjá Skota á HM Fótbolti Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Fótbolti Stóru sleggjurnar ekki afskrifaðar fyrir spennandi kvöld á U.S. Open Golf „Búinn að þroskast um fimm ár á þessu eina móti“ Golf Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Fótbolti Hefja viðræður um kaup á Tonali Enski boltinn Vignir Vatnar tryggði sér sigur á sterku boðsmóti Sport Greip gæsina þegar hún gafst og leiddi Hollendinga til stórsigurs Fótbolti Fleiri fréttir Dramatískt sigurmark tryggði Þjóðverjum farseðil í 32-liða úrslit Þriggja holu bráðabana þurfti í einvígi Perlu og Elsu Hefja viðræður um kaup á Tonali Vignir Vatnar tryggði sér sigur á sterku boðsmóti Greip gæsina þegar hún gafst og leiddi Hollendinga til stórsigurs Stóru sleggjurnar ekki afskrifaðar fyrir spennandi kvöld á U.S. Open Spiluðu allan leikinn í tapi gegn Rosenborg Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Amanda allt í öllu í frábærri endurkomu Varði mark Víðis og Sindra en er mættur á HM Ronaldinho gæti tekið fram skóna 46 ára gamall Tyrkir í sárum: „Biðjum alla tyrknesku þjóðina afsökunar“ „Búinn að þroskast um fimm ár á þessu eina móti“ Flugu í 22 tíma á rellu án klósetts til að sjá Skota á HM Maður dagsins á HM: „Svikari“ af miklum markvarðaættum Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Ætlar að sýna öllum heiminum hvað systir hans heitin sá í honum Dagskráin: Spennan magnast á Opna bandaríska risamótinu í golfi Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Skotar og Marokkóar berjast um sæti í 32-liða úrslitum Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Leiknisliðsins Bandaríkjamenn með fullt hús eftir tvo leiki Sjá meira