Samvinna Emils og Birnis gerði gæfumuninn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. apríl 2026 16:59 Emil Atlason skoraði tvívegis gegn Selfyssingum. vísir/diego Stjarnan er komin áfram í sextán liða úrslit Mjólkurbikars karla eftir 2-1 sigur á Selfossi í dag. Emil Atlason skoraði bæði mörk Stjörnumanna.
Leikið var í Miðgarði, knatthúsi Stjörnunnar. Staðan í hálfleik var markalaus en í upphafi seinni hálfleiks kom Emil Garðbæingum yfir eftir sendingu frá Birni Snæ Ingasyni. Emil stýrði boltanum þá í netið innanfótar eftir fyrirgjöf Birnis frá vinstri. Emil var aftur á ferðinni á 65. mínútu en þá skoraði hann sitt annað mark með skoti af stuttu færi á fjærstöng eftir fyrirgjöf Birnis. Selfoss, sem féll niður í 2. deild á síðasta tímabili, gafst ekki upp og þegar fimm mínútur voru til leiksloka minnkaði Einar Bjarki Einarsson muninn með laglegum skalla eftir hornspyrnu. Selfyssingar reyndu hvað þeir gátu til að jafna metin en varð ekki kápan úr því klæðinu og Stjörnumenn fögnuðu 2-1 sigri. Stjarnan sækir KA heim í 1. umferð Bestu deildar karla eftir viku. Fyrsti leikur Selfoss í 2. deildinni er gegn KFA 2. maí. Ægir, sem vann sér sæti í Lengjudeildinni í fyrra, komst einnig í sextán liða úrslit Mjólkurbikarsins í dag eftir stórsigur á Árbæ, 1-7. Harley Willard skoraði tvö mörk fyrir Ægi og Einar Breki Sverrisson, Breki Rúnar Jónínuson, Atli Rafn Guðbjartsson, Kristinn Ásgeir Þorbergsson og Jordan Adeyemo sitt markið hvor. Egill Helgi Guðjónsson skoraði mark Árbæjar.
Mjólkurbikar karla Stjarnan UMF Selfoss Mest lesið Hafþór Júlíus misnotað lyf síðustu átján ár Sport Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Enski boltinn Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Íslenski boltinn Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Enski boltinn Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Formúla 1 Vestri gæti mætt stórveldi á Þróttarvelli Fótbolti Bruno bætti metið eða hvað? Enski boltinn Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Fótbolti Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Íslenski boltinn Versta byrjun í sögu FH Íslenski boltinn Fleiri fréttir Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Uppgjörið: Breiðablik - KR 6-3 | Kennslustund í Kópavogi „Við réðum ekkert við þá“ „Þetta small saman í kvöld“ Afturelding við hlið Þróttar á toppnum eftir mikinn markaleik „Sérstaklega sætt að vinna hér á KA vellinum“ Uppgjörið: Stjarnan - Fram 0-1 | Sigurmark Róberts færir Fram nær toppnum Víkingur R. - FH 5-0 | Markaveisla í Víkinni Keflavík - Þór 1-0 | Baráttusigur í nýliðaslagnum KA - Valur 0-1 | Valsmenn stöðvuðu sigurgöngu KA Allur ágóði tónleika Loga til Ingvars Sjáðu glæsimörk Gíslanna og endurkomu Eyjamanna „Allir tilbúnir að hrauna yfir þjálfarann“ „Leið aldrei eins og við værum að sigla þessu heim“ Fékk að vita af skiptunum klukkan tvö í gær Úlfur Ágúst sleit liðband ÍA – ÍBV 2-2 | Frábær endurkoma Eyjamanna í jafntefli á Skaganum Sláarkeppni milli Þórdísar og Mistar Sáttur eftir skrýtna daga: „Auðvitað er þetta truflandi“ „Sérstaklega þegar þjálfarinn er ekki uppbyggilegri en þetta“ Sjáðu öll mörkin: Hrafnhildur Ása og Sigríður í ham ÍA fékk að kaupa markvörð og Jón Sölvi snýr aftur „Við erum í nútímalýðræðisfélagi“ „Hefðu átt að vera stærri úrslit“ Grindavík/Njarðvík - Stjarnan 1-1 | Afmælisbarnið Ingibjörg bjargaði stigi fyrir Stjörnuna Sjá meira