Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Eiður Þór Árnason skrifar 5. apríl 2026 19:41 Fleiri innanlandsferðum hefur verið bætt við á þriðjudag til að bregðast við ástandinu, að sögn Icelandair. Vísir/Vilhelm Óveðrið sem gengur brátt yfir landið er farið að hafa áhrif á flugferðir Icelandair og hafa nokkrar utanlandsferðir verið felldar niður í fyrramálið. „Það er náttúrulega spáð mjög slæmu veðri um allt land á morgun og við gerum alveg ráð fyrir að það muni valda einhverjum röskunum á flugi.“
Þetta segir Ásdís Ýr Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Icelandair. Allar brottfarir frá Keflavíkurflugvelli snemma í fyrramálið séu sem stendur á áætlun en breytingar hafi verið gerðar á nokkrum flugferðum frá Keflavíkurflugvelli síðla morguns. „Við erum búin að aflýsa þremur ferðum til Kaupmannahafnar, Stokkhólms og Amsterdam. Svo hefur öðrum ferðum ýmist verið seinkað, eins og til sólarstaðanna Faro, Barcelona, Nice og Tenerife, eða flýtt, eins og flugi til London Gatwick og Parísar.“ Áfram sé fylgst náið með stöðinni sem geti enn tekið breytingum. Aðstæður verða metnar út frá því hvernig veðrið þróast og liggja frekari upplýsingar fyrir í fyrramálið, að sögn Ásdísar. Bjóða innanlandsfarþegum að breyta bókunum Varðandi innanlandsflugið þá hefur farþegum sem áttu bókað flug á morgun verið boðið að breyta bókun sinni án viðbótarkostnaðar. Ásdís segir að aukaflugferðum hafi verið bætt við á þriðjudag til Akureyrar, Egilsstaða, Ísafjarðar og Hafnar í Hornafirði. „Við bara fylgjumst svo með og sjáum hvernig þetta þróast á morgun, hvaða flug verða á áætlun og svo framvegis. En við erum byrjuð að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða og gera nokkrar breytingar,“ bætir Ásdís við. Farþegar séu hvattir til að passa upp á að vera með rétt símanúmer og netfang skráð svo Icelandair geti komið upplýsingum til þeirra með greiðum hætti ef breytingar verða á ferðaáætlun. Óheppilegur tími fyrir óveður Páskarnir eru háannatími hjá Icelandair þar sem fjöldi Íslendinga er á faraldsfæti og ekki óalgengt að fólk fari að skila sér heim úr utanlandsferðum á öðrum degi páska. „Við erum að gera allt sem við getum til þess að koma fólki út eða heim eða á sinn áfangastað og við erum bara að vinna í því og sjá hvernig við getum leyst þetta,“ segir Ásdís í samtali við Vísi. Glíman við veðuröflin sé fastur liður í rekstri flugfélags á Íslandi en bendir hún á að veturinn í ár hafi raunar verið nokkuð góður þar til að lægðirnar fóru að skella á landinu í mars, hver á eftir annarri. „Við erum náttúrulega með þaulvant fólk í því að leysa úr svona aðstæðum.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Icelandair Veður Fréttir af flugi Tengdar fréttir Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biðlar til fólks á leiðinni til og frá höfuðborgarsvæðinu að gera slíkt áður en versta veðrið skellur á eða eftir að því slotar. Holtavörðuheiði verður lokað í hádeginu og mestöllu Suðausturlandinu strax í fyrramálið. 5. apríl 2026 16:21 Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Viðvaranirnar gulu eru orðnar appelsínugular og spáð er staðbundnum hviðum í Faxaflóa og með suðurströndinni yfir fjörutíu metrum á sekúndu. 5. apríl 2026 10:33 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ Sjá meira
Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biðlar til fólks á leiðinni til og frá höfuðborgarsvæðinu að gera slíkt áður en versta veðrið skellur á eða eftir að því slotar. Holtavörðuheiði verður lokað í hádeginu og mestöllu Suðausturlandinu strax í fyrramálið. 5. apríl 2026 16:21
Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Viðvaranirnar gulu eru orðnar appelsínugular og spáð er staðbundnum hviðum í Faxaflóa og með suðurströndinni yfir fjörutíu metrum á sekúndu. 5. apríl 2026 10:33