Nokkrir tæpir í Grindavík sem „tala skít“ Valur Páll Eiríksson skrifar 6. apríl 2026 11:47 Rúnar Ingi segist ætla að impra fyrir sínum mönnum að halda haus gegn Grindvíkingum sem reyni að espa þá upp. Vísir/Guðmundur Njarðvík og Grindavík mætast í leik tvö í 8-liða úrslitum Bónus-deildar karla í körfubolta í Icemar-höllinni í Njarðvík í kvöld. Þjálfari Njarðvík vonast til að sínir menn haldi haus og endurtekning verði ekki á slagsmálum líkt og sáust í fyrsta leik.
Njarðvík og Grindavík mætast í kvöld í Icemar-höllinni í Reykjanesbæ. Leikurinn hefst klukkan 19:00 og er sýndur beint á Sýn Sport Ísland 2. Upp úr sauð undir lok fyrsta leiks liðanna í Grindavík þar sem stuðningsmenn komust inn á völlinn og lögregla þurfti að aðstoða gæslumenn við að stía mönnum í sundur. Þónokkrar sektir voru gefnar út á bæði félög en enginn fór í leikbann eftir uppákomuna. Alls námu sektirnir sem Grindavík fékk 440 þúsund krónum en Njarðvík fékk samtals áttatíu þúsund króna sekt. Mikil eftirvænting er fyrir leik kvöldsins fyrir þessum Suðurnesjaslag og fjöldi miða selst í Njarðvík. Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, er ekki síst spenntur. Njarðvíkingar þurftu að bíða endanlegrar niðurstöðu aganefndar KKÍ á laugardag áður en menn fóru að æfa upplegg fyrir leikinn, en eftir fund nefndarinnar var ljóst að enginn Njarðvíkingur né Grindvíkingur væri í leikbanni í kvöld. „Við erum búnir að æfa núna laugardag og sunnudag eftir að við fengum niðurstöðu aganefndar. Það eru allir spenntir, það stefnir í met kvöld í Icemar-höllinni. Þetta er það sem gefur þessu auka og tilgangurinn fyrir því að maður er í þessu. Að spila körfubolta á þessu stigi mótsins. Eftirvæntingin er slík að það verður vonandi orðið fullt klukkutíma fyrir leik,“ segir Rúnar í samtali við Vísi. Hann fagnar því að engir leikmenn fari í bann en Dominykas Milka var til að mynda rekinn úr húsi, en slapp líkt og aðrir með skrekkinn. „Ég er sáttur við niðurstöðuna. Ég var mjög svekktur út í mína menn á hliðarlínunni og í viðtali eftir leik, þegar maður er enn inni í aðstæðunum. En eftir að ég kom heim og sá þetta betur í sjónvarpinu, þá var ég ekki eins svekktur,“ „Mér fannst við heilt yfir halda nokkuð góðum haus og ég var strax nánast viss um það að það yrði enginn sendur í bann. Ég fagna þeirri niðurstöðu aganefndar. Það verða allir með í kvöld og þetta verður hörku körfuboltaleikur. Það er það sem við viljum,“ segir Rúnar. Nokkrir tæpir í Grindavík sem „tali skít“ Líkt og Rúnar nefnir eiga flestir von á mikilli hörku í kvöld, sérstaklega í ljósi þess sem átti sér stað fyrir helgi. Grannalið að mætast í úrslitakeppni og segir Rúnar að andrúmsloftið verði rafmagnað. Hann mun impra fyrir sínum mönnum að halda haus og leyfa atviki líkt og því á dögunum ekki að eiga sér stað aftur. „Ég held að þegar þessi tvö lið mætast, og eftir það sem gerðist í síðasta leik, er allt undir hjá bæði þeim og okkur. Grindavík vill ekki lenda 2-0 undir. Það verður hart barist en ég hef undirbúið mína menn þannig að við látum þetta snúast um körfubolta. Hvort sem það sé verið að reyna að ná mönnum upp eða ekki þurfum við að vera yfir það hafnir að fara í einhverja vitleysu,“ „En ég held það megi búast við því að það verði rafmagnað andrúmsloft í kvöld. Það er kannski ástæðan fyrir því að það er búið að selja þúsund miða. Fólk vill sjá það sem gerist á vellinum í kvöld,“ segir Rúnar. Er hætt við slagsmálum aftur? „Nei, ég held ekki. Ég get ekki talað fyrir Grindvíkingana en ég sagði eftir síðasta leik að þeir eru þarna nokkrir tæpir og ég stend við þau orð. Þeir eyða meiri tíma í það að tala skít við mína leikmenn í stað þess að verða sjálfir. Þeir hita ekki upp í hálfleik heldur eru, aftur, að tala bara einhvern skít og eru með fókusinn þar. Ef þeir vilja vera þar er það bara allt í góðu. En ég brýni fyrir mínum leikmannahópi að við ætlum ekki að fara á þetta plan. Við ætlum að láta þetta snúast um körfubolta. Ef við náum að halda þeim aga, þá líst mér alltaf vel á að við komum út úr þessu með sigur á bakinu,“ segir Rúnar. Líkt og segir að ofan verður leikur Njarðvíkur og Grindavíkur í beinni á Sýn Sport Ísland 2 frá klukkan 18:50. KR og Stjarnan mætast einnig í kvöld. Sá leikur er klukkan 20:00 og í beinni á Sýn Sport Ísland frá klukkan 19:50.
Bónus-deild karla UMF Grindavík UMF Njarðvík Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Sara Rún öflug í sigri KR Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Stjarnan skein skært gegn nýliðunum „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Tryggvi hafði betur gegn Rubio Fyrstur síðan David Robinson var og hét Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ „Hans besti leikur“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Sjá meira