Keflvíkingur keppti í Squid Game Sindri Sverrisson skrifar 7. apríl 2026 07:02 Ariela Lewis keppti í Squid Game raunveruleikaþætti ásamt systur sinni Aaliyah en þær fengu því miður lítinn séns til að sanna sig. Skjáskot/Netflix Einn af leikmönnum kvennaliðs Keflavíkur í fótbolta er með það á ferilskránni að hafa keppt ásamt tvíburasystur sinni um 570 milljónir króna í Squid Game raunveruleikaþætti.
Keflavíkurkonur eru að undirbúa sig fyrir nýja leiktíð í Lengjudeildinni og jafnframt að kynna leikmenn fyrir stuðningsmönnum. Sóknarmaðurinn Ariela Lewis er einn þeirra leikmanna en hún hefur spilað hér á landi frá árinu 2022, fyrst með Gróttu og Aftureldingu en svo með Keflavík eftir að hafa komið til liðsins á miðju tímabili í Bestu deildinni 2024. Lewis varð ekki orða vant þegar hún var beðin um að nefna skemmtilega staðreynd um sjálfa sig, því hún hefur tekið þátt í Netflix-raunveruleikaþætti. Þar er um að ræða Squid Game: The Challenge sem eru breskir raunveruleikaþættir byggðir á suður-kóresku sjónvarpsþáttaröðinni Squid Game. Vissulega eru raunveruleikaþættirnir ekki eins blóðugir og grimmilegir og hinir raunverulegu Squid Game þættir. Í boði var hins vegar afar hátt verðlaunafé, eins og fyrr segir, eða 4,56 milljónir Bandaríkjadala. Ekki fór þó ýkja langur tími í þættina hjá Lewis því hún féll úr keppni í fyrstu þrautinni, ásamt tvíburasystur sinni Aaliyah. Þær fengu þó í raun ekki að hafa mikil áhrif á það. Keppendunum 456 hafði þá verið skipt í tvo jafnstóra hópa og snerist þrautin um að stjórnandi hvors hóps myndi ýta á takka þegar 456 sekúndur hefðu liðið. Systurnar voru í hópnum sem í kjölfarið var svo „tekinn af lífi“. Lewis, sem er 31 árs gömul, hefur greinilega gaman af að láta finna fyrir sér því í öðrum svörum hennar í leikmannakynningu Keflvíkinga kemur fram að hún vilji að fjögur gul spjöld þurfi til að fá rautt spjald, og leikmenn ættu að mega safna endalaust mörgum gulum spjöldum á leiktíð án þess að fara í bann. Kynninguna má sjá hér að ofan. Fyrsti leikur Keflavíkur í Lengjudeildinni er 2. maí, á Sauðárkróki gegn Tindastóli. Fyrst mætir liðið hins vegar KR á heimavelli 19. apríl, í Mjólkurbikarnum.
Keflavík ÍF Lengjudeild kvenna Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira