Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Kjartan Kjartansson skrifar 7. apríl 2026 11:31 Frestur félagsmanna í Verkalýðsfélagi Suðurlands til þess að skila inn framboðum til stjórnar byrjaði að tifa síðdegis á miðvikudag á sama tíma og skrifstofu félagsins var lokað fram yfir páska. Verkaðlýðsfélag Suðurlands Félagar í Verkalýðsfélagi Suðurlands hafa innan við fjóra daga til þess að bjóða sig fram til stjórnar eftir að sitjandi stjórn lét frest til þess byrja að tikka við lokun skrifstofu félagsins fyrir páska. Fyrrverandi starfsmaður sem sitjandi formaður rak hefur boðað mótframboð.
Útlit er fyrir að minsta kosti eitt mótframboð komi fram í stjórnarkjöri hjá LVFS í fyrsta skipti frá því að Guðrún Elín Pálsdóttir, formaður og framkvæmdastjóri, varð formaður fyrir áratug. Hún hefur starfað á skrifstofu VLFS í tæpan aldarfjórðung. Bergþóra Eiðsdóttir, fyrrverandi bókari VLFS, gagnrýndi að stjórnarkjör hefði enn ekki verið auglýst þrátt fyrir að Guðrún Elín hefði lýst yfir framboði í viðtali við Vísi í síðustu viku. Hún hyggur á mótframboð gegn Guðrúnu Elínu sem sagði henni upp störfum fyrir rúmum mánuði. Daginn eftir að frétt Vísis um mótframboðið birtist í síðustu viku birtist tilkynning frá stjórn VLFS um tillögu uppstillingarnefndar félagsins að A-lista fyrir stjórnarkjör. Tilkynningin var birt á vefsíðu félagsins við lokun skrifstofunnar síðdegis á miðvikudag fyrir páska. Félagsmönnum var gefinn frestur til hádegis næsta föstudag til þess að skila inn öðrum listum. Þeir vilja gefa kost á sér til stjórnarsetu hafa þannig aðeins þrjá og hálfan virkan dag til þess að skila inn framboði. Kosið í fyrsta lagi aðra helgi Bergþóra segir ákvörðun stjórnarinnar hafa áhrif á framboð sitt þar sem hún fái ekki aðgang að félagaskrá fyrr en hún skilar inn framboði sínu. Í millitíðinni geti hún ekki kynnt sig fyrir félagsmönnum. Hún hafi nú skemmri tíma en ella til þess. Þá furðar hún sig á því að dagsetning kjördags liggi ekki fyrir. Hún geti hvorki sagt stuðningsmönnum sínum hvenær kosning fari fram né hvernig. Stjórn getur ýmist ákveðið að halda rafræna kosningu, Ekki er þó óvanalegt að kjördagur liggi ekki fyrir á þessum tímapunkti. Þegar Efling auglýsti tillögu uppstillingarnefndar sinnar í janúar var aðeins getið um frest til að skila inn mótframboðum. Lög VLFS gera ráð fyrir að mótframboðum sé skilað ekki síðar en sjö dögum fyrir kjördag. Miðað við það færi kjörið í fyrsta lagi fram laugardaginn 18. apríl. Framboðsfrestir almennt knappir Starfsmaður á skrifstofu VLFS sem svaraði í síma í morgun hafði ekki upplýsingar um hvenær yrði kosið til stjórnar. Guðrún Elín Pálsdóttir, formaður og framkvæmdastjóri, væri ekki laus til viðtals í dag. Hann sagði jafnframt að Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir, lögfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands, hefði tekið að sér formennsku í kjörstjórn í stjórnarkjörinu. Karen Ósk segir við Vísi að kjörstjórn ákveði kjördag og fyrirkomulag kosningarinnar í samráði við stjórn félagsins. Hann sé ekki endanlega ákvarðaður fyrr en ljóst sé að mótframboð komi fram. Annars sé sjálfkjörið í stjórn. Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir, lögfræðingur hjá ASÍ og formaður kjörstjórnar í stjórnarkjöri Verkalýðsfélags Suðurlands. Varðandi frestinn til að skila inn mótframboðum og tímasetningu tilkynningar sitjandi stjórnar fyrir páska segir Karen Ósk að frestir af þessu tagi séu knappir almennt. Kjörstjórnin hafi ekki komið að tilkynningunni en Karen Ósk segist hafa fengið þær upplýsingar að stjórnin hafi gefið tíu daga frest í stað sjö vegna þriggja frídaga um páskana. Hefði það ekki verið gert hefðu mótframbjóðendur haft einn og hálfan í frest. „Þetta eru knappir tímar, ég get alveg fallist á það,“ segir lögfræðingurinn. Allar líkur er á því að kosið verði rafrænt til stjórnar VLFS. Þó að samkvæmt lögunum geti rafræn kosning hafist innan við viku eftir að mótframboð er kynnt fullyrðir Karen Ósk að sú verði ekki raunin. Bergþóra segir Vísi að hún ætli að reyna að skila inn framboði sínu í dag eða á morgun.
Stéttarfélög Árborg ASÍ Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Fleiri fréttir Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Sjá meira