Formúla 1

Hægri hönd Verstappens skiptir um lið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Max Verstappen og Gianpiero Lambiase fagna saman fjórða heimsmeistaratitli Verstappen í röð árið 2024.
Max Verstappen og Gianpiero Lambiase fagna saman fjórða heimsmeistaratitli Verstappen í röð árið 2024. Getty/Mark Thompson

Gianpiero Lambiase, keppnisverkfræðingur og hægri hönd formúluökumannsins Max Verstappens til margra ára, er sagður vera á förum frá Formúlu 1-liði Red Bull. Hann er sagður hafa þegið stjarnfræðilegt tilboð frá keppinaut.

Það eru hollensku dagblöðin De Telegraaf og De Limburger, ásamt hinu virta The Athletic, sem halda því fram að hafa traustar heimildir fyrir því að samkomulag hafi náðst milli hins þekkta Lambiase og McLaren-liðsins.

Samkvæmt fréttunum á nýja ráðningarsambandið að hefjast fyrir keppnistímabilið 2028. Ef svo er, heldur Verstappen manninum sem lengi hefur verið hægri hönd hans í tæp tvö keppnistímabil til viðbótar. Lambiase hjálpaði hollenska ökuþórnum að vinna fjóra heimsmeistaratitla í röð frá 2021 til 2024.

Samningur Lambiase hjá Red Bull-liðinu gildir út keppnistímabilið 2027.

Max Verstappen sjálfur hefur undanfarnar vikur gefið í skyn að hann sé að íhuga eigin framtíð.

„Í einkalífinu er ég mjög hamingjusamur. Á sama tíma þarf maður að keppa í 24 keppnum, eða 22 í ár, og þá fer maður að hugsa: Er þetta þess virði? Eða liði mér betur ef ég væri heima hjá fjölskyldunni og hitti vini mína oftar, þegar ég nýt ekki íþróttarinnar?“ svaraði Max Verstappen spurningu frá BBC um framtíðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×